Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2002, Page 36

Frjáls verslun - 01.08.2002, Page 36
SKRIFSTOFUR A haustdögum var gerð húsrannsókn hjá Eimskip í Sundahöfn og miðborg Reykjavíkur. BAU G U R Lögreglan réðst til inngöngu íhúsnæði Baugs í haust til að kanna rétt- mæti ásakana fyrrverandi samstarfsaðila í Bandaríkjunum. september 2002 vegna kæru Samskipa til Samkeppnisstofnun- ar í lok ágúst þar sem óskað var eftir rannsókn á því hvort Eim- skip hefði brotið gegn samkeppnislögum í flutningastarfsemi sinni. Húsleitin var því annars eðlis en fyrri húsleitir. Starfs- menn Samkeppnisstofnunar höfðu áður verið að rannsaka verðsamráð og skyld atriði en voru í þetta sinn að rannsaka meinta misnotkun Eimskips á markaðsráðandi stöðu. Húsleit- in var gerð í framhaldi af úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um heimild til að leita og leggja hald á gögn á skrifstofum Eim- skips. Málið er enn í rannsókn. „Fulltrúar Samkeppnisstofnunar gengu hófsamlega fram og óskuðu eftir því að skoða tiltekin gögn í okkar skjalageymslum. Þótt heimsókn þeirra kæmi á óvart var þeim að sjálfsögðu vel tekið, enda eru þeir að sinna rannsóknarskyldu sinni. Við litum aftur á móti svo á, að kæruefni Samskipa gæfi ekki tilefni til hús- rannsóknar. Kæruefnið fengum við að vísu ekki í hendur fyrr en rúmri viku eftir að kæran var lögð inn til Samkeppnisstofn- unar eða sama dag og húsrannsóknin fór fram. Að athuguðu máli sjáum við ekki tilefni til þess að ganga fram með þessum hætti,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Eimskips. „Inngrip sem þetta vekur vissulega athygli. Hér á landi fylgjast menn vel með fréttum og þekkja almennt vel til fyrir- tækja, þannig að þetta virkar með öðrum hætti hér en erlendis. Við höfum orðið þess áskynja að erlendis hafa menn upplifað húsrannsóknina með dramatískari hætti. Viðskiptavin- ir, samstarfsaðilar og ijölmargir aðrir, sem þekkja til fé- lagsins, átta sig ekki á því sem í gangi er. Þannig feng- um við fyrirspurn frá erlendum farþega um það hvort rannsóknin breytti nokkuð möguleika hans á að koma til landsins með okkar skipi. Það er því afar mikilsvert að yfirvöld vandi framgöngu sína sérstaklega vel og verði á varðbergi fyrir því, að óvildarmenn eða sam- keppnisaðilar noti ekki kæruleiðina til að koma höggi á menn og fyrirtæki. Saklausir menn geta vissulega orð- ið fyrir höggi þótt kærandinn í þessu máli líti svo á að það jafngildi viðurkenningu á sök telji maður sig verða fyrir höggi. Slíkur málflutningur dæmir sig sjálfur og er þýðingarmikið að menn láti hann ekki villa sér sýn.“ [ffl Baugur 2002 aahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit hjá Baugi Group hf. 28. ágúst 2002. Ástæðan voru ásakanir Jóns Geralds Sullenbergers, forsvarsmanns bandaríska heildsölufyrirtækisins Nordica Inc., um að forstjóri og stjórnarformaður Baugs Group hafi gerst sekir um auðgunarbrot með þvi að láta Baug greiða verulegar íjárhæðir til kaupa á skemmtibát í Flórída með röngum reikningum. Húsleitin hófst kl. 17 mið- vikudaginn 28. ágúst og lauk um miðnætti. Lagt var hald á ýmis gögn. Baugur kærði til Héraðsdóms Reykjavíkur og krafðist þess að húsleitin yrði dæmd ólögmæt þar sem efnahagsbrotadeild hefði ekki rann- sakað málið nógu vel áður en til húsleitarinnar kom eða gætt meðalhófs í aðgerðum sínum en því var hafnað. I byrjun september var svo gerð önnur húsleit á vegum ríkislögreglustjóra í höfuðstöðvum P/f SMS verslunar- félaginu í Færeyjum af sömu ástæðu, en Baugur á helmingshlut í því. Rannsókn stendur enn yfir. B3 36
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.