Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 28

Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 28
inn tilboð sem var hærra. Um þessa sölu hefur raunar hvað mest verið ijallað í flölmiðlum frá deg- inum mikla, 18. september, og hafa stór orð fallið. Tvær lotur 18. september Skipta má atburða- rásinni hinn 18. september í tvær lotur þótt lang- flestir túlki málið svo að þær hangi á sömu spýt- unni. Fyrri lotan snýst um kaup Islandsbanka á Sjóvá-Almennum. Seinni lotan er um upp- stokkunina á Eimskipafélaginu og Straumi á milli bankanna tveggja - og sem botn fékkst í á löngum kvöldfundi í Landsbankanum þennan dag. Fyrri lotan byrjaði á því að Islansbanki og Sjóvá- Almennar boðuðu til blaðamannafundar í húsa- kynnum Sjóvá-Almennra. Niðurstaða: íslands- banki hafði keypt 33% í Sjóvá-Almennum og lýsti 40 ára reynsla í hönnun, stjórnun og eftirliti við mannvirkjagerð Við erum leiðandi fyrirtæki í verkfræðiþjónustu á íslandi HÖNNUN Grensásvegi 1-108 Reykjavík sími 510 4000 - fax 510 4001 Niðurstaða matador- spilsins var í stuttu máli þessi: Lands- bankinn fékk Eimskipa- félagið og þar með Brim og hlutina í SH, Marel, Steinhólum (Skeljungi) og fleiri félögum. Banldnn fórnaði á móti; Straumi oghlutum Eimskips í Flugleiðum, Sjóvá-Almennum og Islandsbanka. því yfir að hann ætlaði að eignast allt félagið með yfirtökutilboði á genginu 37 sem þýddi að Sjóvá-Almennar yrðu yfir- teknar á 19,4 milljarða. A meðal seljenda í Sjóvá-Almennum þennan dag voru bræðurnir Benedikt og Einar Sveins- synir sem hafa stýrt félaginu, Benedikt sem stjórnarformaður og Einar sem for- stjóri. Síðan hefur Islandsbanki haldið áfram að kaupa hluti í félaginu og hafði eignast 71,46% hinn 3. október með þeim framvirku samningum sem náðust að kvöldi 18. september. Seinni lotan var þannig að herskari manna mætti niður í Landsbanka af hálfu Eimskipafélagsins, íslandsbanka, Landsbanka og Samsonar að kvöldi 18. september. Niðurstaðan af þeim næturfundi varð þessi: a. Landsbankinn og Samson fengu Eimskipafélagið með því að Straumur og Sjóvá-Almennar seldu Eimskip (Burðarási) hluti sína í félaginu og fengu þar með í leiðinni Brim og hluti Burðaráss í SH, Marel og fleiri félögum. Þessi viðskipti má meta á 9,7 milljarða samtals. b. Islandsbanki fékk hluti Eimskips í Flugleiðum, Sjóvá-Almennum og Islandsbanka. Þessi viðskipti má meta á 8,7 milljarða. c. íslandsbanki fékk Straum með því að kaupa 37,2% hlut Landsbankans, Samson Global og Otec Investment (Sindri Sindrason) í Straumi. Þessi hlutur var seldur á 6,6 milljarða króna. Eftir allar þessar sviptingar leit samkomulagið svona út: Eimskipafélagið (Burðarás) seldi eignarhluti sína í Sjóvá-Almennum, íslandsbanka og Flugleiðum í skiptum íýrir hlutabréf í Eimskipafélaginu og ákvað að lækka hlutaféð í félaginu um 13,82% á hlutahafafundinum 9. október. Enn- fremur var ákveðið að Landsbankinn yrði ráðandi hluthafi í Eimskipa- félaginu og að Straumur og Sjóvá-Almennar hyrfu úr hópi hluthafa þess. Sigur eða jafntefli? Það eru einu sinni þannig að fólk spyr sig að því hverjir séu sigurvegarar þegar svona mikil átök og sviptingar verða í viðskipta- lífinu. I hugum flestra var Björgólfur Guðmundsson sigurvegarinn mælt á þá mælistiku að hann langaði í Eimskipafélagið og hann fékk félagið. Honum tókst einnig að skera á eignatengslin sem kennd hafa verið Kolkrabbann, þ.e. naflastreng Eimskipafélagsins við Sjóvár-Almennar og Flugleiðir. Aðrir líta svo á að hvorugur sé sigurvegari heldur hafi þarna verið samið um stórmeistarajafntefli. Sú skoðun er þó útbreidd á meðal fólks að Kolkbrabbinn gamli sé ekki „fýllilega allur“ heldur hafi tveir helstu angar hans einungis færst til - haft vistaskipti; annar farið inn í Landsbankann og hinn í Islandsbanka. Þessi skoðun stafar ekki síst af eignatengslunum á milli Islandsbanka, Sjóvár- Almennra og Flugleiða. 28 www.honnun.is Hann var aldrei með Straum í hendi Hvernig mátti það vera að hin ótrúlega skriða 18. september fór af stað, ekki síst í ljósi þessi að ijölmiðlar höfðu flutt margar fréttir um að Björgólfur væri búinn að ná undir sig Straumi og þar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.