Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2003, Page 169

Frjáls verslun - 01.08.2003, Page 169
VÍNPISTILL SIGMARS B. Reynslusala er tilraunasala á tegundum og er henni ætlað að meta hvort nægjanleg sala sé á tegundinni og hvort ástæða sé til að bjóða viðkomandi áfengistegund í kjarnasölu vínbúð- anna. Reynslusölutegundir fást í, eins og áður sagði, Heiðrúnu, Kringlunni og svo í Smáralind, Hafnarfirði, á Sel- tjarnarnesi og Akureyri. Þetta kerfi hefur það í för með sér að tegundir koma og fara. Þess vegna þarf vínáhugafólk að hafa augun opin ef það finnur áhugaverða víntegund, það er ekki víst að vínið komi aftur. fllsace Þegar fer að hausta breytist ilmur náttúrunnar. Angan gróðurs og glóðarsteikts kjöts hverfur og loftið verður tærara eftír fyrstu haustrokin og rigningarnar. Riesling vín frá Alsace minnir á haustið, ferskt, frískandi, með ljúfu aldin- og ávaxta- bragði. Trimbach Riesling Reserve, á kr. 1.490, er dæmi um frá- bært Alsace vín. Jean Trimbach er með elstu vínframleiðendum í héraðinu, hóf víngerð árið 1626. Trimbach Jjölskyldan fram- leiðir traust og gott vin. Trimbach Riesling Reserva er frábært vín tíl að drekka eitt sér; það er fölgult á lit eins og kjarrið á Þing- völlum í október. Þetta vín er fremur sýruríkt, með smjör- kenndu ávaxtabragði sem minnir á banana, epli og vínber. Þetta vín hentar vel sem fordrykkur og með krydduðum mat. Annað frábært vín frá Alsace er Pfaffenheim Hatschbourg Tokay-pinot Gris, á 2.300. Já, þetta er nokkurt verð en ég get fullvissað ykkur um að það er hverrar krónu virði. Þetta er gott dæmi um vín sem eiginlega er of gott til að hafa með mat, það nýtur sín best eitt sér. Þetta yndislega vín er með mikiili fyllingu og mjúku kryddbragði og af því er blómaangan. Með lambinu Nú er komið í verslanir nýtt og ferskt lambakjöt. Ljómandi vín á góðu verði, sem passar vel með lambakjöti, er ítalska vínið Ruffino Fonte et sole frá Toscana, á kr. 1.090. Milt vin með þægilegu ávaxtaþragði, - góður ítali. Clos du Bois Pinot Noir er bandarískt vín frá Sonoma, á kr. 1.590. Þetta er flókið vín með frábærri bragðfyllingu, meðal annars vottar fyrir bragði af kirsuberjum og jafnvel kryddi eins og negul og kanel, - smellpassar með lambakjötinu, ekki síst innmat eins og létt- steiktri lambalifur. Nýtt vín á reynslulista ÁTVR er Catena Malbec frá einum helsta frumkvöðli argentínskrar vínframleiðslu, Nicolai Catena. Argentína er án efa í dag eitt mest spennandi land hins nýja vín- heims. Bodega Catena er eitt af merkari vínhúsum Argentínu, þaðan kemur einkar áhugavert vín sem fengur er að fá hingað til lands. Malbec þrúgan dafnar einstaklega vel í Argentínu. í mínum huga eru Malbec vínin í svipuðum flokki og Beaujolais vínin eða Zinfandel vínin frá Kaliforniu. Þessi vín passa ákaflega vel með lambakjöti. Catena Malbec, á kr. 1.590, er með góðri fyllingu, djúprautt á lit, á það slær fjólubláum blæ. Bragðið er mikið, sterkt blábeijabragð og jafnvel bragð af kryddjurtum. Þetta vín er aldeilis frábært með steiktu lambalæri sem kryddað hefur verið með miklum hvítlauk, timian og svörtum pipar. Frá Catena er einnig til í verslunum ÁTVR aðeins ódýrara Malbec vín, Almos Malbec, á kr. 1.290. Þetta er aðeins grófara vín en þó með miklum þokka og dæmigerður argentínskur Malbec. Villibráð Mjög mikilvægt er að hafa gott vín með villibráð. Þegar velja á vín með villibráð verður að taka tillit til ýmissa þátta eins og hvernig sósa er með villibráðinni. Gott vín með hreindýri og gæs er Scanavino Barolo, kr. 2.390. Þetta er eink- ar ljúft Barolo, ekki of stamt, bragðmikið, með bragði af þurrk- uðum ávöxtum, berjum og austrænu kryddi. Þetta er gott villi- bráðarvín ef með villibráðinni er ijómasósa, mögulega bragð- bætt með gráðosti. Ef léttari sósa er höfð með villibráðinni er hægt að mæla með víni frá fyrrnefndum víngerðarlistamanni, Catena frá Argentínu, Catena Cabernet Sauvignon á kr. 1.590. Af þessu víni er milt eikarbragð, þá gætir bragðs af sólbeijum og súkkulaði og einnig af te. Þetta er fínlegt vín sem á einstak- lega vel við íslenska villibráð. Peter Lehmann Stonewell Shiraz, á kr. 3.400, er öflugt villi- bráðarvín með flóknu bragðmynstri. Þar má íinna mikið blá- beija- og krækibeijabragð, jafnvel sultubragð en einnig vottar fyrir bragði af karamellu, pipar og timian. Með sjófuglum eins og svartfugli er gott að hafa hvítvín. Sósur með vínediki, helst Balsam ediki, passa vel með svart- fugli. Svartfugl með góðri Balsamsósu er bragðmikill og ljúf- fengur réttur sem frábært er að hafa gott hvítvín með. Berin- ger Napa Valley Chardonnay, á kr. 1.590, er rétta vínið. Af þessum Chardonnay er milt eikarbragð, vínið er ávaxtaríkt en þó fínlegt, í eftirbragðinu má greina sítrónu og hunang. Gott vín gerir góða villibráð betri, ýtir undir eða undirstrikar hið sérstaka bragð villibráðarinnar, sem einkennist af kryddjurt- um og beijum.BH Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum vínum: Hvítvín: Trimbach Riesling Reserver kr. 1.490.- Pfaffenheim Hatschbourg Tokav-Pinot Gris kr. 2.300.- Beringer Napa Valley Chardonnay kr. 1.590.- Rauðvín Ruffino Fonte al Sole kr. 1.090,- Clos Du Bois Pinot Noir kr. 1.590.- Catena Malbec kr. 1.590.- Almos Malbec kr. 1.290.- Scanavino Barolo kr. 2.390.- Catena Cabernet Sauvignon kr. 1.590,- Peter Lehmann Stonewell Shiraz kr. 3.490.- 169
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.