Frjáls verslun - 01.10.2004, Blaðsíða 31
I
35,5 milljaröa kaup Islandsbanka
ISLANDSBANKI hefur hækkað tilboð sitt í öll hlutabréf
norska bankans BNbank (Bolig og Næringsbanken ASA)
i 340 norskar krónur á hlut greitt í peningum, en fyrra tilboð
Islandsbanka hljóðaði upp á 320 norskar krónur á hvem hlut.
Miðað við nýja tilboðið þarf íslandsbanki að reiða af hendi
teplega 35,5 milljarða íslenskra króna fyrir bankann. Yfir-
verðið sem Islandsbanki er tilbúinn að greiða er því um 26%
umfram gengi í síðustu viðskiptum áður en fyrra tilboðið var
lagt fram 15. nóvember sl.
Islandsbanki mat það svo að til að ná nægjanlegu magni
bréfa þyrfti að hækka verðið um sem nemur 6% hækkun frá
fyrra verði. Bankinn er núna komin með 60% eignarhlut með
eigin bréfum og samþykktum annarra hluthafa, og er á góðri
Ileið með ætlunarverk sitt - þ.e. að yfirtaka bankann.
Aætlað tilboðstímabil er frá og með 1. desember til og með
“
BN-bankinn lætur lítið yfir sér. Eina merki bankans í Osló
er uppi á sjöttu hæð á skrifstofu- og verslunarhúsnæði í
miðborg Oslóar.
Flytt bolíglánet til
betaler gebyrene! 2,95% H
^ffektiv rento o
(500.000 Ur, 20
Statens tinglysingsgebyr 7.!i2,. |,r
Várt etabletingsgtbyr ll.cOÍI,- kr
Bankastjóri norska BN-bankans segist aldrei hafa tapað
krónu á lánum til útgerðar. Það er annað en stjórar
Islandsbanka geta sagt. BN-bankinn hefur aldrei
lánað króna til útgerðar. í bankanum er fiskur bannorð.
I-igendur bankans hafa alltaf haft allt sitt á þurru.
„Þessir bankar eru eins ólíkir og hugsast getur,“ segir
^unnar Jerven, bankastjóri BN-bankans. „Við höfum aldrei
komið nærri sjávarútvegi og aldrei sinnt rekstrarlánum,
hvorki til útgerðar né nokkurs annars."
Og bankastjórinn heldur áfram stoltur:
>.Okkar lán eru öll með veðum í fasteignum
1 þéttbýli, á stöðum þar sem ætla má að
haegt sé að selja eignirnar. Þess vegna
hemur tap okkar af útlánum aðeins 0,08
Prósentum. Það er aðeins brot af því sem
aðrir bankar tapa af útlánum. Við tökum
enga áhættu."
Tveir gjörólíkir bankar íslandsbankamenn hafa lýst því yfir
að þeir ætli sér að verða ráðandi banki í sjávarútvegi í heim-
inum. BN-banki hefur það að markmiði að fleyta rjómann af
fasteignamarkaðnum í Noregi.
En ef bankamir eru svo ólíkir - hver er þá tilgangur íslands-
banka með að kaupa BN-bankann dýru verði? Það eru boðnir
35,5 milljarðar íslenskra króna fyrir bankann.
„Eg veit það ekki,“ svarar Gunnar bankasljóri. Hann brosir
og endurtekur: „Eg veit það ekki.“
Eftir nokkra umhugsun bætir
hann við: „Það gæti styrkt Islands-
banka á alþjóðavettvangi að vísa
til eignar í banka sem er rekinn
með eins lítilli áhættu og hugs-
ast getur. En þá skiptir máli að
umtuma ekki rekstrinum hér,“
segir hann.
Gunnar Jerven leggur áherslu á
að Islandsbanki og BN-banki séu
gjörólíkar stofiianir þótt litlu muni
á stærð þeirra. Hjá Islandsbanka
vinna yfir 700 manns en aðeins
85 í BN-banka.
31