Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2004, Síða 40

Frjáls verslun - 01.10.2004, Síða 40
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON: Bonus Stores: „Dýrt námskeið“ í anda Bónusar Stöðu Baugs í dag sagði Jón Ásgeir um margt ekki ósvipaða því sem var árið 1989 þegar hann var með föður sínum að koma Bónus á laggirnar. Nú - sem þá - væri unnið í anda sömu hugmyndafræði; það er að hugsa sem smásali, meta árangur hvers dag fyrir sig, og breyta samkvæmt því. Hann sagði að einfaldleikinn væri þýðingar- mikill. „Hjá Bónus náðum við árangri með því að hugsa ein- falt. Það var lykilforskot okkar þá - og nú,“ sagði Jón Ásgeir. I rekstri Haga - til dæmis - liggi 95% allra rekstrartalna dags- ins fyrir um hádegi næsta dag og eftir því sé kúrsinn stilltur. Sömuleiðis skapi það fyrirtækinu forskot að vera ekki skráð á markaði, enda steli slíkt miklum tíma frá forstjórum sem betur megi nýta til annars. „I Bretlandi er orðspor okkar þannig að við þykjum orð- heldnir í því sem við tökum okkur fýrir hendur, en fyrst og síðast mjög snöggir til ákvarðana og að ljúka málum. Á stærri mörkuðum telja menn það lykilatriði," sagði Jón Ásgeir um landvinninga Baugs í Bretlandi sem byijuðu með samstarfi Debenhams og Arcadia. Þar hefðu Baugsmenn kynnst því, að markaðurinn var undirlagður miðað við stöð- una hér. „Uti grípa menn fyrir andlitið þegar þeir heyra um verðlagningu á hlutabréfamarkaðnum hér. Skilja ekkert í því hvernig jafn lítill markaður og hér getur staðið undir jafn háu verði.“ Sem vænta mátti vakti erindi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar eftirtekt og þar leyndist raunar stór fréttapunktur. Hann greindi frá hugsanlegum kaupum Baugs á bresku verslunarkeðjunni Big Food Group. Gengju þau kaup eftir yrði Baugur stærsta einkafýrir- tæki í Bretlandi, með 700 milljarða króna veltu. Um þessar mundir er unnið að áreiðan- leikakönnun, en að sannreyna allar upplýs- ingar sagði Jón Ásgeir afskaplega mikilvægt. I því sambandi vitnaði hann til kaupa Baugs á Bonus Dollars Stores, sem hefði verið „dýrt námskeið" eins og hann komst að orði. „Það var fyrirtæki sem við fórum mjög hratt í, en að gera þar ekki ítarlega áreiðanleikakönnun er lykilatriði sem við myndum aldrei klikka á í dag. Það er alveg sama hve snöggur þú ætlar að vera, þú þarft alltaf að hafa tiltækar með ákveðinni vissu ákveðnar upplýsingar um rekstur fyrir- tækisins," segir Jón Ásgeir. Hann sagði mikilvægt að viðsnúningur á rekstri fýrir- tækja tæki ekki of langan tíma. Þó að fýrirtækin séu lítil geti slíkt á stundum verið langtímaverk. Einmitt til að varast slíkt væri mikilvægt að hafa nákvæmar upplýsingar fyrir- liggjandi. Jón Ásgeir: Nú - sem þá - er unnið í anda sömu hugmyndafræði; það er að hugsa sem smásali, meta árangur hvers dags fyrir sig, og breyta samkvæmt því. Einfaldleikinn er þýðingarmikill og gefur forskot. Þörf fyrir ögrandi verhefni Um fjárfestingar Baugs á íslandi sagði Jón Ásgeir þær í grunninn vera smá- sölurekstur, fasteignir og ijölmiðlar „og ýmis smærri mál,“ eins og hann komst að orði. Stjórnendur félagsins hefðu skilgreint efnahagsreikninginn þannig að einu prósenti skyldi veija til ýmiss konar menningartengdra verk- efna. Slíkt væri nauðsynlegt, enda komi þau í einhverri mynd til með að geta skilað arði á komandi tíð. Baugsmenn hefðu raunar áhuga á fjárfestingum á fleiri sviðum en þeir hefðu verið á til þessa. Lærdómsríkt væri að kynnast nýjum viðfangsefnum og endaði Jón Ásgeir tölu sína með hvatningu til fundarmanna um að senda sér tölvu- póst ef þeir hefðu áhugaverðar hugmyndir um viðskipta- tækifæri. Baugur væri fyrirtæki sem hefði þörf fýrir ögrandi viðfangsefni.H3 Birna Einarsdottir, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála íslandsbanka. „Grunnurinn að því að vera leiðandi á markaði er að hafa alltaf eitthvað nýtt fram að færa.“ 40
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.