Frjáls verslun - 01.10.2004, Síða 58
Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri fyrir utan höfuðstöðvar Sparisjóðs vélstjóra að Borgartúni 18.
RAGNAR Z. GUÐJÓNSSON
Fjölskyldumaður og
mikill sparisjóðamaður
Ungur Húnvetningur, Ragnar Z. Guðjónsson, tók um mitt árið við sem sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs vélstjóra af Hallgrími Jónssyni sem verið hafði sparisjóðsstjóri í 39 ár.
Texti: Hilmar Karlsson Myndir: Geir Ólafsson
Um mitt árið urðu mannaskipti í brúnni hjá Sparisjóði
vélstjóra þegar Hallgrímur Jónsson lét af störfum spari-
sjóðsstjóra eftir 42 farsæl ár, þar af 39 sem sparisjóðsstjóri.
Við tók ungur Húnvetningur, Ragnar Z. Guðjónsson viðskipta-
fræðingur, fæddur árið 1970. Ragnar er fæddur og uppalinn á
Blönduósi, sonur hjónanna Guðjóns Ragnarssonar rafvirkja-
meistara og Kolbrúnar Zophoníasdóttur skrifstofumanns. Að
loknu stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra lá
leiðin suður yfir heiðar til Reykjavíkur og við tók nám í við-
skiptafræði við Háskóla íslands. Að lokinni útskrift sem cand.
oecon. með stjómun sem sérsvið hóf Ragnar störf í ljármála-
deild Islenska útvarpsfélagsins. Þar starfaði hann þangað til um
mitt ár 1996 er hann gekk til liðs við Sparisjóð vélstjóra sem
forstöðumaður hag- og markaðsdeildar. Nú, átta áram síðar, er
Ragnar sparisjóðsstjóri eins stærsta sparisjóðs landsins.
sparisjóði eins og önnur iyrirtæki að menn verða að vera stöðugt
á tánum til að halda samkeppnishæfni og til að ná forskoti. Spari-
sjóður vélstjóra hefur til að mynda alltaf verið í fararbroddi þegar
kemur að nýjustu tækni í þvi skyni að efla þjónustu við viðskipta-
vini sína. Það má segja að nú sé það brýnna en nokkru sinni fýrr
að afla sér nýrra og raunhæfra upplýsinga. Öflun þeirra, samhæf-
ingu og hagnýtingu verður að binda í kerfi. Það getur reynst
erfitt að koma því í kring áður en kaupandi vöru og þjónustu
tekur upp nýja hætti eða keppninautamir láta til skara skríða. Það
gildir í öllum atvinnugreinum að þekking veitir forskot Hæfnin
til þekkingaröflunar, að hagnýta sér vitneskju um hvað aðrir, t.d.
keppinautar okkar, eru að fást við, verður tvímælalaust helsta
uppspretta virðisauka eða hagnaðar íyrirtælqanna á komandi
árum. Minna og minna af verðmætaaukningunni hjá íýrirtækj-
unum mun i framtíðinni byggjast á hefðbundnum þáttum."
Hörð samkeppni „Samkeppni á Jjármálamarkaði hefur aukist SltOða þarf vel kOStí Sameinintjat Mikil umræða hefur átt
mikið og það er af hinu góða,“ segir Ragnar. „Það gildir um sér stað um framtíð sparisjóða almennt og telja sumir að tími
58