Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2004, Síða 61

Frjáls verslun - 01.10.2004, Síða 61
auglýsir Domino's Domino's hefur notað Færeying til að auglýsa pítsur. Hann hefur vakið mikla athygli. Maðurinn heitir Emst Sumberg Olsen, og hefur verið framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins á Islandi. Auglýsingamar með honum hafa svínvirkað! Texti: Geir A. Guðsteinsson Myndir: Geir Olafsson o.fl. Pítsuóður Færeyingur, Jógvan Jakobsen, hefur undan- farin misseri vakið stormandi lukku sjónvarpsáhorf- enda þar sem hann dásamar Domino's pítsur. í fyrstu auglýsingunum kemur hann til Islands til þess að borða sem mest af pítsum þar sem þær fást ekki í Færeyjum. Síðan fer hann að vinna við pítsugerð, og er loks orðinn starfsmaður mánaðarins. Afar fyndnar auglýsingar sem gera það að verkum að nánast allir vita hvað Færeyingurinn er að auglýsa, þ.e. Domino's pítsur, og þá er tilganginum náð, ekki satt? Þess eru jafnvel dæmi að krakkar hafi gert sér ferð á sölustað Domino's pítsa og spurt hvort Færeyingurinn sé að vinna, enda hanga víða uppi myndir af honum á sölustöð- unum sem manni mánaðarins! En hver er þessi maður sem hefur gert svo stormandi lukku í íslensku Sjónvarpi? Hann er að sönnu Færeyingur, heitir Ernst Sumberg Olsen, og hefur verið framkvæmda- stjóri Vestnorræna ráðsins á Islandi. Hann er nú fluttur til Danmerkur. Hann hefur haft ákaflega gaman af því að leika í þessum auglýsingum, Islendingar og Færeyingar hafi gaman af því að skemmta sér saman, og það sé bara gaman ef Norðurlanda- þjóðirnar allar geri svolítið grín hver að annarri! Ernst Sumberg hafði fram til þessa alls ekki leikið neitt, en hefur játað að eftir þetta góða en óvænta gengi kitli það hann svolítið að leika meira, en bara svolítið! smjörsöluna. Ég hafði engar væntingar um það að þetta gengi jafn vel og raunin varð á. Færeyska hugmyndin var ein af 5 hugmyndum auglýsingastofunnar, en hún snerist um Færeying sem kæmi til Islands, alveg pítsa-sjúkur, og dómínerandi karakter. Þetta átti alls ekki að vera lítillækkandi fyrir Færeyinga, heldur svolítill orðaleikur sem sýndi hvernig þeir snúa ýmsu á hvolf miðað við hvað við hugsum og segjum. En það átti alls ekki að gera lítið úr Færeyingum og er alls gert. Fordómum Islendinga gegn útlendingum er jafnvel snúið svolítið á haus. Þetta er ódýr herferð, fáir og óþekktir leikarar. Við leituðum til Færeyingafélagsins og báðum um Færeyinga, við vildum hafa Færeyinga til að leika í auglýsingunni. Við fengum þennan Emst Sumberg Olsen hjá Vestnor- ræna ráðinu sem reyndist hafa geysilega leikarahæfileika, langt umfram það sem nokkur hafði þorað að vona. Auglýsing- amar áttu að verða 5 eða 6 í upphafi, en þær em orðnar 30, en þær hafa ekki allar birst ennþá. íslendingar hafa gaman af gálgahúmor, en kímnigáfa þeirra er líkari þeirri bresku en bandarísku," segir Þórarinn Ævarsson. Pítsur fyrir 2 milljarða króna Þórarinn segir að herferðin hafi skilað miklu betri árangri en nokkur hafi þorað að vona í upphafi, og fyrirtækið fengið gríðarlega mikla umfjöllun út á hana. Nú sé svo komið að fólk brosi þegar það sjái Emst Olsen með þetta skegg og í þessum galla, og allir viti hvað hann sé að auglýsa séu þeir spurðir að því. Söluaukning sé mjög áþreifanleg og jákvæðni gagn- vart fyrirtækinu hafi farið mjög vax- andi. Domino's vildi gera margar ódýrar auglýsingar með Færeyingnum, og það tókst. En auðvitað verða þessar auglýsingar „þreyttar" og hugmyndin er að láta Færeyinginn fljúga hingað nokkmm sinnum á ári, það er auð- Vildi eignast fyndna Domino's fígúru Þórarinn Ævarsson, næringarfræðingur og framkvæmda- stjóri Domino's, segir að fyrir um tveimur ámm hafi fyrirtækið talið sig hafa efni á þvi að auglýsa í sjónvarpi, og hann hafi í því augnamiði snúið sér að auglýsingastofunni Vatíkaninu. „Ég sagði við þá að ég ætti mér þann draum að eignast fyndna Domino's fígúm, sambæri- lega við þá sem Helga Braga er fyrir Osta- og „Ég sagði við auglýsinga- stofuna að ég ætti mér þann draum að eignast fyndna Domino's fígúru, sambærilega við þá sem Helga Braga er fyrir Osta- og smjörsöluna." 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.