Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 84

Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 84
& lin teoma Jón Norland, framkvæmdastjoH Smith & Norland hf. Kæliskápur með sjónvarpi VÍð höfum á þessu ári komið með ýmsar athyglisverðar nýjungar í vöruframboði okkar,“ segir Jón Norland, framkvæmdasljóri Smith & Norland. Góður gangur hefur verið í rekstri fyrirtækisins undanfarið, en það er velþekkt fyrir að vera Siemens-umboðið á Islandi jafnifamt því að hafa umboð fyrir ýmis fleiri þekkt vörumerki. fy'ónusta fyrirtækisins við rafmagnsmarkaðinn er annars mjög fjölbreytt, þar sem viðskiptavinir þess eru jatht almenningur að kaupa heimilistæki upp í orkufyrirtæki að festa kaup á mikil- vægum og flóknum rafbúnaði á sínu sviði. Kæliskápur með Sjónvarpi Smith & Norland er eitt af grónari fyrirtækjum landsins og á sér margra áratuga sögu, en það er til húsa að Nóatúni 4 í Reykjavík. „Aðstæður á þessu ári hafa verið góðar og virðist útkoman hjá okkur ætla að verða vel viðunandi. Heimilistæki seljast vel og sömuleiðis hafa miklar byggmgaframkvæmdir, einkum á Stór-Reykjavflcursvæðinu, haft það í för með sér að sala á raf- lagnaefni hefur verið góð. Það segir víða til sín I viðskiptum þegar byggðar eru um 3000 nýjar íbúðir eins og í ár. Virkjana- og stóriðjuframkvæmdir auka viðskiptin jafnframt því sem sala á ýmiss konar lækningatækjum hefur verið með meira móti. Þar nefni ég einkum sölu á tveimur segulómtækjum, annars vegar til Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og hins vegar til Landspítalans í Fossvogi. Þetta eru tæki frá Siemens af full- komnustu gerð og mjög ánægjulegt fyrir fyrirtæki okkar að taka þátt í þessu verkefni," segir Jón Norland. Þegar rætt eru um athyglisverðar nýjungar á neytenda- markaði á árinu, nefnir Jón, að frá Siemens séu nú komnir kæliskápar með innbyggðu sjónvarpstæki. „Eg hef trú á því að ýmsum kunni að þykja þægilegt að hafa einn slíkan í eld- húsinu og skáblína á hann um leið og morgunkomið er snætt eða soðni liskurinn hesthúsaðin- um kvöldið. Sömuleiðis tókum við fyrir stuttu í sölu nýja skyrtustrauvél frá Siemens, sem ber engilsaxneska nafnið „ironMan“ og vakið hefrir mikla athygli. Jámkarlinn er klæddur í strauraka skyrtuna og heitu lofti blásið inn í hann. Með því móti rétta efnis- þræðimir úr sér og skyrtan verður þurr og slétt á um tíu mínútum. Fyrir skyrtu- klædda athafnamenn í tímaþröng er þetta tæki sannkallað þarfaþing. Ef vikið er að öðrum heimilistækjum sjáum við að spanhelluborð verða sífellt eftirsóttari og svo má ég vitaskuld ekki gleyma að nefna þvottavélina og þurrkarann frá Siemens, sem við höfum afhent með íslensku stjómborði, og selst hafa eins og heitar lummur eða, ættum við kannski að segja á nútímamáli, eins og Dominos flatbökur." Sérfræðingar í rafmayni Eins og flestir vita er Siemens eitt af forystufyrirtækjunum í framleiðslu búnaðar á fjarskiptasviði. „Símamarkaðurinn hefur breyst talsvert undanfarin ár. Þegar GSM-larsímamir komu snerist krafa markaðarins um sífeflt léttari og nettari síma, en nú hala þeir hins vegar náð vissum mörkum að því leyti. Þess í stað gerir fólk kröfiir um að fá síma með stórum og skýrum skjá, með myndavél og að símamir hafi möguleika á gagnvirkum samskiptum við Netið. Hvað fastíinusímana varðar er það nýtt að nú má brátt fara að nota þá til að senda smáskilaboð rétt eins og farsímana Slflct hefur ekld verið í boði hérlendis fram að þessu, en Síminn mun bjóða þessa þjónustu innan tíðar.“ Jón Norland segir Smith & Norland leggja metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum alhliða og heildstæðar lausnir í rafmagnsmálum. „Við emm sérfræðingar í flestu því sem við- kemur rafinagni, hvort sem um er að ræða rör, dósir, rofa, vír, lampa og pemr, flókinn rafeindabúnað, vöfflujám eða virkjanir, svo að eitthvað sé nefnt, enda er meginþorri starfsfólks okkar sérmenntaður á þessu sviði, þar sem áhugasvið þess liggur jafn- framt Slflct ætti ekki heldur að koma á óvart, þvi að rafmagn er býsna spennandi - að ekki sé talað um allan þann nýja rafbúnað sem komið hefur fram í seinni tíð.“'33 Góður gangur hjá Smith & Norland hf. Nýjungar í vöruframboði á neytendamarkaði. Virkjanabúnaður og lækningatæki. 84
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.