Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 112
Langt er síðan Róbert Michelsen fór að hjálpa til á úrsmíðastofu föður síns hjá Franch Michelsen úrsmíðameistara, að
Laugavegi 15. FV-mynd: Geir Ólafsson
Róbert Michelsen hjá Franch Michelsen
Textí: ísak Öm Sigurðsson
Fólk umhverfis mig var
alltaf með það á hreinu að
ég myndi fara í úrsmíði,
þó að ég hafi ekki verið á
þeirri skoðun sjálfur þegar ég
var yngri. Kannski var það
vegna þess að ég hef alltaf
verið með fínhreyfingar í
höndunum, ágætur teiknari
og skrifári og góður við að
meðhöndla smágerða hluti,“
segir Róbert Michelsen sem
stefnir á að læra úrsmíði eins
og faðir hans, afi og langafi.
„Þegar ég var lítill hafði
ég hug á því að gerast mynd-
höggvari og á tímabili stefndi
ég að því að verða atvinnu-
maður í ftjálsum íþróttum, því
ég var og er virkur í þeim.
Greinamar mínar þar eru að
mestu spretthlaup, 100, 200
og 400 m hlaup. Þær hug-
myndir mínar hafa þó dottið
upp fyrir og úrsmíðin orðið
ofan á. Það er nokkuð ljóst að
ég mun leggja úrsmíði fyrir
mig og verða ijórða kynslóð
Michelsen úrsmiða."
Langt er síðan Róbert fór
að hjálpa til á úrsmíðastofu
föður síns að Laugavegi 15
(Franch Michelsen úrsmíða-
meistari). „Strax árið 1997, á
13. ári, fór ég að hanga héma
á sumrin, lærði að skipta um
rafhlöður og pinna. Seinna
gler, visa, trekkjara og gekk
í þessi einfaldari störf. Síðan
fór ég á samning hjá föður
mínum, Frank U. Michelsen,
þann 1. janúar 2000 og kláraði
hann 1. janúar sl. Næsta skref
hjá mér er að fara í úrsmíða-
nám erlendis, því fagið er ekki
kennt hérna heima. Faðir
minn vill helst ekki kenna
mér of mikið, kennir mér
meira gmnnvinnu, en vill að
úrsmíðaskólinn fari ítarlegar í
þá hlið málanna."
„Eg er búinn að sækja
um hjá heimsþekktum sviss-
neskum skóla, WOSTEP,
þeim sama og pabbi lærði
hjá. WOSTEP tekur aðeins
við fjórum nemendum á
tveggja ára fresti og ég hef
næst von um að komast að í
ágústmánuði árið 2007. Ég tel
góðar líkur á að komast að á
þeim tíma, er þegar búinn að
ræða við skólayfirvöld sem
tóku vel í umsókn mína. Ég
tel að framtíðin sé björt fyrir
góða úrsmiði, það er fyrir-
sjáanlegur skortur í heiminum
á úrsmiðum sem sérhæfa sig
í vönduðum úrum þar sem
heila kynslóð vantar eftír bylt-
ingu rafrænu úranna.“
Langafi Róberts, J. Franch
Michelsen úrsmiður, stofn-
aði fyrirtæki sitt árið 1909
á Sauðárkróki og er það
því elsta úrsmíðafyrirtæki
landsins. „Afi minn, Frank
Michelsen, stofnaði versl-
unina héma í Reykjavík að
Vesturgötu 1943, síðan fluttí
hún að Laugavegi 39 en kom
á núverandi stað að Lauga-
vegi 15 árið 1993. Þegar raf-
ræn úr og klukkur komu á
markað, unnu þær nokkuð
markað af hefðbundnum en
við vomm fljótir að tileinka
okkur nýja tækni. Hins vegar
hafa mekanísk úr unnið mark-
aðshlutdeild aftur, enda em
flest vönduð úr mekanísk og
em betri en þau stafrænu ef
eitthvað er. Franch Michelsen
leggur mikla áherslu á meka-
nísk úr og er það aðalsmerki
búðarinnar að bjóða upp á
mikið úrval af þeim.“
Róbert lauk stúdentsprófi
í Kvennaskólanum í vor og
er þessa dagana að sinna
tveimur störfum, annars
vegar hjá Franch Michelsen
og hins vegar sem líkams-
ræktarþjálfari í likamsræktar-
stöðinni í Nordica við Suður-
landsbraut. Unnusta Róberts
er Anna Jónsdóttir, sem er
klárar stúdentinn í MK nú um
áramótin.
„Fyrir utan áhugann á
íþróttum og ræktun líkam-
ans, hef ég eytt miklum tíma
í hundinn minn og þjálfun
hans. Kvikmyndir hafa einnig
alltaf átt stóran sess í hjarta
mínu og hef gaman af að velta
mér upp úr þeim og skrifa
um þær. Hins vegar hef ég
ekki mikinn frítíma núna til
að sinna áhugamálum mínum
úr því að ég sinni tveimur
störfum," segir Róbertffl
112