Morgunn


Morgunn - 01.12.1965, Blaðsíða 39

Morgunn - 01.12.1965, Blaðsíða 39
MORGUNN 117 nokkru föstu um það, að framhaldslífið sé annað og meira en sennileg tilgáta. Hins vegar gera menn sér ekki nægilega ljósa grein fyrir því, að þessir dulhæfileikar, svo sem fjarhrif, fjarskyggni, forvizka o. fl. bera sjálfir svo augljóst vitni um það, að mannssálin geti starfað óháð líkamanum, að þar er um óbeina en æði sterka sönnun fyrir framhaldslífi að ræða. Ef það er rétt, að mannssálin geti, á meðan hún er enn í líkamanum hér á jörð, farið langt út yfir öll takmörk rúms og tíma, hvers vegna ætti þá dauði líkamans að svipta hana þeim hæfileikum á nokkurn hátt? Þvi ekki getur það verið efnislíkaminn sjálfur, sem býr yfir slikum hæfileikum, sem bersýnilega ná iangt út fyrir þau takmörk, sem skynfæri hans svara til. Að því er þessi fyrirbæri snertir, virðist hið venjulega starf heilans og taugakerfisins ekki vera fyrir hendi, heldur er heilinn þá aðeins hlutlaus farvegur beinna samskipta einnar sálar við aðra. Því betur sem vísindamönnunum tekst að sýna fram á hina svo nefndu psi-hæfileika eða dularöfl vitundarinnar, því aug- ljósari verður geta sálarinnar til þess að starfa sjálfstætt og óháð líkamanum, og því nær færumst við lausninni á gátu framhaldslífsins. Þeir, sem einkum fást við þessar rann- sóknir eru beinlínis neyddir til þess að koma fram með senni- legar tilgátur í þessum efnum, er síðan verði sannprófaðar. Þess vegna er það eitt af þeim markmiðum, sem slikum rannsóknum ber að keppa eftir, að ganga úr skugga um það, hvort það er eitthvað í persónuleika mannsins, og þá hvað það er, sem ætla má að lifi eftir líkamsdauðann. Þetta er blátt áfram hin venjulega og viðurkennda aðferð í vísindarannsóknum og sennilega sú eina, sem vænlegust er til góðs árangurs og mundi leiða til þess að beina rannsókn- unum á heppilegastar brautir og að þeim tilgátum, sem væn- legast væri að styðjast við í starfinu. Liggur það og í augum uppi, að ef með slikum rannsóknum tekst að finna og að- greina frá öðrum þá þætti persónuleikans, sem starfað geta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.