Morgunn - 01.12.1965, Blaðsíða 8
86
MORGUNN
tvennt er fyrir hendi, er manninum borgið frá því að lenda í
viðjum þröngsýni og einstefnuaksturs, hvort heldur sem er
í leit hans að trú eða þekkingu. Og þá eiga þær tvær samleið
í mannheimi. Þekkingin styður trúna, og trúin gefur þekk-
ingunni Ijós og yl.
En er þetta ekki einungis fánýtur hugsana- og orðaleik-
ur? mun einhver spyrja. Vera má að svo sé aðeinhverju
leyti, en þó er það trú mín, að þetta sé það sem koma skal,
ef mannkynið fær enn unað um aldir á jörð vorri. Skulu nú
raktir til þess fleiri þræðir.
Síðastliðin öld var öld bjartsýnnar efnishyggju. Sigrar
manns-andans voru þá margir og stórir, og vísindamennina
dreymdi stóra drauma um að sá tími væri skammt undan
að gáta alheimsins yrði ráðin. f gleði sinni yfir unnum sigr-
um og ofurkappinu í leit að meiri þekkingu urðu vísinda-
mennirnir haldnir því yfirlæti að telja, að ekki væri lengur
þörf fyrir nokkurn Guð eða Guðstrú i heimsskoðun þeirra.
Efnið varð þeim allt, lögmál þess voru lögmál alheimsins,
andinn var einungis einn þáttur efnisins, eða ef til vill ein-
ungis hreyfing í því. Og þeir höfðu margt til síns máls.
Öld vor hefur unnið enn stærri vísindasigra, en um leið
hefur komið í ljós, að þótt vér komumst lengra og lengra að
innsta kjarna efnisins, er alheimsgátan sjálf jafn óleyst. Og
það merkilega hefur gerzt, að ýmsir þeir vísindamenn, sem
dýpst hafa kafað hylji efnisins og mesta þekkingu öðlazt á
lögmálum þess, hafa hneigzt til trúar og dulhyggju, sem oft-
sinnis hljóta að falla í sama farveg. Þekking þeirra á al-
heiminum hefur skapað hjá þeim trú á eitthvert guðlegt afl,
sem þeir lúta í lotning.
Vonbrigði samtíðar vorrar eru mörg. Meiri ógnir hafa
dunið á kynslóð vorri en dæmi voru til áður. Þekkingin, vís-
indin, sem menn tignuðu og treystu, hafa að vísu fært mann-
kyninu margfalda blessun, ef vér berum saman kjör vor og
liðinna kynslóða, t. d. í baráttunni við sjúkdóma og hungur,
svo að eitthvað sé nefnt. En vísindin hafa einnig fært mann-
kyninu ógnir. Heimurinn skelfur af ótta við kjarnorku-