Morgunn - 01.12.1965, Page 43
MORGUNN
121
og kirkjudeildir verða faslmótaðar stofnanir. Og innan þess-
ara stofnana finna menn gagnkvæma hjálp, og þátttakan í
sameiginlegri guðsdýrkun verður mönnum hvatning og
vakning jafnframt því að vera stöðug áminning um vand-
aða breytni. Margir láta sér þetta nægja, en sumum verður
trúin auk þess heitt tilfinningamál. Hinir eru miklu færri,
sem tengja trú sína skynseminni að nokkru ráði. Og um
mjög fáa verður það sameiginlega sagt með fullum sanni,
að þeir hafi reynt innsta kjarna trúarinnar. Þeir einir geta
sagt: „Ég trúi ekki. Ég bara veit“.
llvað eru vísimli?
Vísindi eru þekking. Staðreyndir varðandi veröldina í
kringum okkur, sem hafa verið rannsakaðar gaumgæfilega
og til þess beitt óteljandi tilraunum, og síðan flokkaðar,
það eru nefnd vísindi. Og vísindin eru meira. Visindamenn-
irnir komast að raun um síendurtekin fyrii’bæri og samband
þeirra og reyna að finna þar bæði orsök og afleiðing. At-
burðir eru bornir vandlega saman og reynt að finna skýr-
ingar á þeim. Tilgátur koma fram, er leiða til enn frekari
athugana, sem unnt sé að gera, eða til nýrra tiirauna til þess
að ganga úr skugga um réttmæti þeirra. Þessi vinnubrögð,
þar sem á undan fer nákvæm athugun, síðan tiigáta og hugs-
anlegar afleiðingar hennar, og að lokum nýjar athuganir,
sem leiða til endurbóta á tilgátunni, eru nefnd vísindalegar
aðferðir. Smátt og smátt taka tilgáturnar breytingum, unz
tiiraunir að lokum staðfesta réttmæti þeirra, og þar með er
fundið það, sem nefnt er náttúrulögmál, eða algild fuil-
yrðing um það, hvernig náttúrlegt fyrirbæri gerist, þegar
ákveðin skilyrði eru fyrir hendi.
Vegna þessarar þekkingar á náttúrulögmálunum geta
vísindin stjórnað orkunni og notað hana í þágu mannkyns-
ins. Allar uppgötvanir og framfarir á hinu tæknilega sviði
eru að þakka þeirri vísindalegu þekkingu, sem menn hafa
aflað sér á undanförnum timum. Driffjöður hins vísindalega