Morgunn


Morgunn - 01.12.1965, Page 45

Morgunn - 01.12.1965, Page 45
MORGUNN 123 á ýmsum sviðum. Persónuleg og einlæg trú þarf ekki að setja einstaklinginn í slíkan vanda, en fastmótuð trúarbrögð kom- ast ekki hjá því að taka afstöðu til vísindalegrar þekkingar. Og árangurinn hefur orðið, eins og ljóst er af mannkyns- sögunni, ofstæki og ofsóknir á hendur þeim, sem ekki höfðu „augu trúarinnar“ til þess að skynja og viðurkenna kenn- ingar trúarbragðanna. I bók sinni, Ágrip af sögu Englands, getur höfundurinn, G. M. Trevelyan, þess, sem nútímamanni kann að virðast harla ótrúlegt, að árið 1457 var biskup nokkur að nafni Pecock yfirheyrður og hnepptur í fangelsi fyrir það að hafa í deil- um við áhangendur siðbótarmannsins John Wycleffe skýr- skotað að nokkru leyti til mannlegrar skynsemi, í stað þess að bera eingöngu fyrir sig kenningar og áhrifavald kirkj- unnar. Þetta áhrifavald yfir hugum manna, sem aðeins leyfði hinum trúuðu að viðurkenna þann sannleika, sem kirkjan kenndi, en nefndi allt annað villutrú, er verðskuldaði bann- færingu og ströngustu pindingar og ofsóknir, má hiklaust telja svartasta blett kirkjusögunnar. Og enn í dag eru það hömlur kirkjunnar á frelsi manna til þess að ráðast gegn viðurkenndum kenningum hennar, sem valdið hefur tor- tryggni vísindanna í garð trúarinnar. Þegar visindin tóku fyrir alvöru að skjóta upp kollinum á öndverðri 16. öld, urðu þau fyrir miklum mótblæstri af hálfu þeirra, sem héldu dauðahaldi í kenningar Aristotelesar, sem miðaldakirkjan þá einnig var fylgjandi. Þegar Copernicus hélt því fram árið 1543, að jörðin og reikistjörnurnar snerust um sólina, mætti sú skoðun því- líkri mótspyrnu, að hún hlaut ekki almenna viðurkenningu fyrr en hálfri annarri öld síðar. Og andstaðan kom frá kirkj- unni og þeim, sem héldu dauðahaidi í hinar gömlu erfi- kenningar. Þegar búið er á annað borð að rígnegla hugann við for- dómana, má teygja trúgirnina ótrúlega langt, áður en hún lætur sveigjast undan þunga þeirrar þekkingar, sem kemur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.