Morgunn - 01.12.1965, Qupperneq 52
130
MORGUNN
það, að bæði trú og vísindi hafa til þessa verið harla tómlát
um sálarrannsóknirnar — en af mjög ólíkum ástæðum.
Hvorki guðfræðingarnir, né vísindamenn á öðrum sviðum,
hafa lagt sig mikið fram til þess að rannsaka þær staðreynd-
ir og niðurstöður, sem þar hafa komið fram. Þeir hafa valið
þann kostinn að telja þær rannsóknir vera fyrir neðan virð-
ingu sína og reynt að bendla þær við andatrú, hjátrú og svik.
Sannleikur er þó sá, að þegar alllöngu fyrir síðustu aldamót
hafði Brezka Sálarrannsóknafélagið rannsakað ýmis fyrir-
bæri með fullkomlega vísindalegri nákvæmni og sýnt fram
á, að þau merkilegu fyrirbæri gerast, sem hijóta að hafa af-
armikla þýðingu varðandi rétt viðhorf til tilverunnar. Af-
staða efnishyggjuvisindanna til þessara staðreynda hefur
verið svo óvisindaleg sem mest má verða, og iýsir hún sér
vel í þessum ummælum: ,,Vér vitum þegar, hvað er mögu-
legt og hvað ómögulegt í þessum efnisheimi. Og þessir hlutir
geta ekki átt sér stað, vegna þess, að þeir stríða gegn því í
grundvallaratriðum, sem þegar er vitað“.
Afstaða flestra forystumanna kirkjunnar til málsins hef-
ur verið mjög einkennileg vegna þess, að sálarrannsóknirnar
hafa einmitt varpað nýju ljósi á marga þá atburði, sem frá
er sagt í Ritningunni. Sennilega hefur þessum mönnum þótt
öruggara, að almenningur veitti viðtöku í trú því í Ritning-
unni, sem virtist vera furðuleg kraftaverk, heldur en að
hvetja menn til að reyna að skilja þær frásagnir, sem ef til
vih gæti leitt til þess, að sumir færu að efast um sannleiks-
gildi þeirra.
En nú má sjá ýmis merki þess, að afstaða bæði trúar og
vísinda sé að breytast. Margir vísindamenn og heimspeking-
ar viðurkenna nú fúslega, að dulræn fyrirbæri eigi sér stað.
Og margir mikilsmetnir kirkjuleiðtogar hafa nýlega stofnað
félag til þess að kynna sér sálræn málefni (The Church’s
Feliowship for Psychical Studies).
Annað meginatriði, sem forystumenn í trúmálum gagn-
rýna raunvísindamennina fyrir er það, hve mjög þeim hætt-
ir til þess, í nafni vísindanna, að bera fram ýmsar heimspeki-