Morgunn - 01.06.1988, Qupperneq 5
Guðjón Baldvinsson:
RITSTJÓRARABB
I höndum hafið þið nú fyrra hefti morguns 1988 og von-
andi þykir ykkur það koma nokkuð svo færandi hendi.
Sigurbjörn Svavarsson, sem ritstýrt hefur Morgni við góð-
an orðstí s.l. 4 ár, hefur nú óskað eftir að hætta þeim starfa,
vegna annríkis á öðrum vettvangi. Færum við honurn hér
með bestu þakkir fyrir vel unnið starf í þágu Morguns, og þá
um leið Sálarrannsóknafélags íslands.
Þegar undirritaður hafði samþykkt, eftir nokkra umhugs-
un, að taka að sér ritstjórn eins tölublaðs af tímaritinu, þar til
annar ritstjóri hefði verið fenginn til starfa, þá varð honum
einna fyrst fyrir að íhuga hvert væri hlutverk slíks félagsrits
og hvað því bæri einna helst að birta af efni. Fyrsti ritstjóri
Morguns, Einar H. Kvaran, nefndi í inngangsorðum sínum
að fyrsta tölublaði hans árið 1920, að það væri von þeirra,
sem að útgáfu ritsins stæðu að það yrði, eins og hann orðar
það, ,,ofurlítill gluggi, er eitthvað af morgungeislum góðra
hugsjóna gæti skinið gegn um, og með þeim hætti komist inn
í sem flest heimili þessa lands.“
Minn skilningur á þessum orðum hans er sá, að Morgni
beri m.a. að birta efni um það helsta og nýjasta, sem er að ske
i sálarrannsóknum hverju sinni og ýmsu því, sem að starf-
semi Sálarrannsóknafélagsins lýtur. Jafnframt hlýtur það að
vera keppikefli ritsins að birta sem mest frá sjálfum félags-
3