Morgunn


Morgunn - 01.06.1988, Side 14

Morgunn - 01.06.1988, Side 14
AF FUNDI MEÐ TUTU MORGUNN ykkur eru, kraft og orku til þess að endurnýja og fríska upp styrk ykkar. Nú finnst mér að ég hafi talað nægilega lengi á þennan hátt. Ég treysti því að ykkur muni ekki finnast að ég hafi verið að predika yfir ykkur, því ég hef komið af löngun til að hjálpa ykkur til þess að finna ykkur betur sjálf. En ef þið viljið taka smástund í að spyrja spurninga, þá mun ég reyna að svara þeim. Ég hef verið í heimi andans um afar langan tíma, en ég kann þó ekki öll svör. Ég er enn sem ungabarn. Ég er enn að læra á göngu lífsins. En kannski, eins og stundum á við um eldri bróður, þá hef ég ferðast dálítið lengra og lifað svolítið lengur, svo ég er ef til vill fær um, ef ykkur sýnist svo, að varpa örlitlu ljósi og skilningi á þær spurningar, sem þið kunnið að hafa. Þakka ykkur fyrir áheyrnina! Sp.: Geturðu sagt okkur hver eru takmörk þekkingar þinnar? Sv.: f»ví er erfitt að svara, því allt sem ég segi, þarf að miða við takmörk þrívíddarheims ykkar. Ykkur er vel kunnugt um að til eru fleiri víddir og þið komist í snertingu við þessar víddir hvenær sem þið tengist heimi andans, hvort sem þið eruð áheyrendur, kennarar, að rannsaka eða heila, hver svo sem tengsl ykkar við veröld andans eru, þá komist þið í snertingu við þessar víddir. En þið getið samt ekki meðtekið og skilið, því sú þekking sem ég hef, er fengin með reynslu, sem ég hef gengið í gegn um, á sama hátt og ykkar þekking er reynsla. Árin sem þið hafið lifað, þau verk sem þið hafið unnið, þau lönd sem þið hafið heimsótt, fólkið sem þið hafið talað við, könnun ykkar á þessari heimsspeki, takmörk reynslu minnar eru mjög lík þessu. En það á einnig við um þá reynslu sem ég hef áunnið mér með dvöl minni innan heims andans eða annarra vitundarvídda vítt og breytt. Sp.: Er mögulegt fyrir okkur hér á jörðinni að skilja full- komlega þann heim, sem þú ert í núna? Sv.: Nei, það er ekki mögulegt. Þið kunnið að hafa fengið mikinn skilning á honum í gegn um lestur og reynslu, eins og 12

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.