Morgunn - 01.06.1988, Page 15
morgunn
AFFUNDI MEÐTUTU
ég hef þegar sagt. En ef þið hafið ekki heimsótt, eða hefðuð
ekki heimsótt, annað land handan við höfin, þá gæti verið að
þið hefðuð séð myndir eða lesið bækur um þau. En ef þið
hafið ekki stigið niður fæti í öðrum löndum þá getið þið ekki
metið og skilið þau til fulls. Og þannig er það líka hvað
varðar andlega heiminn og hið andlega líf. Maður verður að
koma til þessara landa til þess að geta skilið þau. Stundum
fæst mikil reynsla í svefni, því allir yfirgefa jarðlíkamann á
meðan þeir sofa. Margir muna ekki þá reynslu sem þeir hafa
öðlast, aðrir hafa þjálfað sig til þess að muna, og ef hægt er að
gera svo, þá er reynslan sem fæst í svefni mikil og margvísleg.
Þá hittið þið látna ástvini ykkar. Þið hittist á nokkurs konar
almennings samkomustað. Nokkurn veginn mitt á milli
andlega heimsins og þess jarðneska, á stað sem við skil-
greinum sem geðræna sviðið. Þar er almennur samkomu-
staður og eins og á jörðinni þá er geðræna sviðið bæði fagurt
og ófagurt, því sérhver sál skapar sjálf þær aðstæður sem hún
eða hann ber með sér þegar komið er í andlega heiminn.
Hann eða hún geta aðeins flutt með sér ríkjandi aðstæður
þegar þau ganga til fundar á geðræna sviðinu. Stundum
munið þið eftir að hafa talað við ástvini ykkar þar, allt það
sem þeir hafa sagt, og allt það sem þeir hafa sýnt ykkur. En
stundum getið þið líka ekki munað neitt. Þetta er ekki eina
reynslan sem þið upplifið í svefni. Stundum er nauðsynlegt
fyrir hjálpendur ykkar að nota ykkur við heilun í svefni. T.d.
á orrustuvöllum þar sem geysað hafa bardagar og manndráp.
Og þið hjálpið fólkinu í andlega heiminum, við að heila huga
og líkama, til þess að hjálpa sálum yfir þessi landamæri.
Stundum geymist minningin hjá sumum. Hjá öðrum hefur
hún grafist djúpt í undirmeðvitundina um sinn. Sú reynsla
sem maður getur orðið fyrir í svefni er takmarkalaus. Það eru
engin takmörk fyrir þessum upplifunum. En þið getið ekki,
ekki einu sinni í svefni, farið inn í andlega heiminn. Þið getið
kannski numið nokkra glampa frá honum, en það næsta sem
þið komist er inn á geðræna sviðið, því þið eruð enn tengd
jarðlíkama ykkar með silfurstrengnum og þess vegna til-
heyrið þið enn jörðinni og til hennar verðið þið að snúa aftur.
13