Morgunn - 01.06.1988, Síða 17
morgunn
AF FUNDI MEÐ TUTU
uin reikistjörnurnar sem ganga í kring um sólina ykkar. Það
tekur jörð ykkar 24 klst. að snúast einn hring um öxul sinn og
heilt ár að fara hring um sólina sína, sólina ykkar. En til eru
aðrar reikistjörnur í ykkar sólkerfi, sem eru heilt ár að snúast
um sinn öxul og langan, langan tíma að fara í kring um sólir
sínar. Er tíminn eitthvað mismunandi á þessum reikistjörn-
um? Eða er tíminn bara ekki til? (Innskot fyrirspyrjanda);
Þetta er allt afstætt! — Það er afstætt já, allir hlutir eru
afstæðir. En tími er nokkuð sem maðurinn hefur þurft að
nota við störf sín á jörðinni, frá því fyrir mörgum öldum
síðan, sólin kemur upp og hnígur til viðar, svo maðurinn geti
plaegt akur sinn, sáð í land sitt, ræktað og uppskorið fyrir
skepnur sínar á réttum tíma.
Sp.: Ég var að hugsa um eitthvað áþekkt og tímann á milli
endurfæðinga þinna, því þú dvelur ekki áþessum stað enda-
laust.
Sv.: Ja, það er nú nokkuð sem jafnvel hinir miklu kennarar
hérna megin lífsins hafa skiptar skoðanir um. Og það er
einnig atriði, sem ég og miðillinn minn höfum kosið að nota
ekki í því starfi, sem við erum að inna af hendi á jörðinni. Það
er staðreynd að endurholdgun á sér stað, en maður skutlast
ekki á milli jarðar og andlega heimsins eins og jó-jó í bandi.
Og fyrir marga er það ekkert nauðsynlegt að snúa aftur til
jarðar eða að snúa yfirleitt aftur innan einhvers gefins tíma.
Sumir leita ekki alltaf eftir því að endurfæðast í líkama, en
vilja heldur starfa á þann hátt, sem margir kennarar og
leiðbeinendur gera, með notkun á, eða fenginn að láni, öllu
heldur, huga og heila miðils. Það eru ekki til neinar fast-
mótaðar reglur um endurholdgun, því alveg eins og þið hafið
frjálsan vilja á jörðinni, þá mun sá frjálsi vilji fylgja ykkur
yfir á hinar víddirnar, hringferðirnar, á hin sviðin. Og hann
mun starfa á þann hátt, sem þið viljið að hann geri.
Sp.: Geturðu þá talað um hinn frjálsa vilja, sem eitthvað
frekar takmarkað?
Sv.: Hann er takmarkaður á jörðinni já, vegna þess að þú
verður að vera bundinn innan lögmáls lands þíns að vissu
ieyti og líka vegna þess að þú ert takmarkaður af jarðlíkam-
15