Morgunn - 01.06.1988, Síða 21
morgunn
AFFUNDI MI£Ð TUTU
Það er ekki endurspeglun eða eftirmynd ykkar sólar á and-
legan hátt. Það er hið upprunalega ljós. Áður en ljósið kom
þar, var myrkur og tóm, ekki síður en á jörðinni og í himin-
geimnum í kring. Og þar sem menn ferðast með tilliti til
langana sinna og möguleika, þá breytast hlutirnir svolítið,
alveg eins og á jörðinni, þar sem yfirborð hennar breytist
fyrir áhrif athafna ykkar, sem geta verið ýmist fallegar eða
bjánalegar. Þannig er það líka í andlega heiminum. Hlutum
má breyta með hinum skapandi krafti eða þeim neikvæða,
því báðir eru til þar líka. Það eru ekki allir englar, sem ganga
nm í andlega heiminum. En hið mikla eftirbreytnilögmál,
líkur sækir Iíkan heim, er til í öllum hinum skapaða heimi,
þeim andlega sem og á jörðinni. Þú spyrð hvort við vinnum.
Við þurfum ekki að vinna fyrir mat okkar í andlega heimin-
tnn, vegna þess að við þörfnumst ekki matar. En þeir sem
hafa starfsaman huga, geta ekki setið í iðjuleysi, en bera með
sér mikla þrá eftir að læra meira og snúa aftur til jarðar,
annað hvort í gegn um endurholdgun eða á þann hátt sem ég
hef valið, að veraöðrum til hjálparogþað er sú vinnasem við
stundum. En hún er ekki til þess að afla sér launa eða
stöðuhækkunar. Hún er tilkomin vegna þess kærleika, sem
kennarar og leiðbeinendur hér, bera með sér til bræðra
okkar og systra á jörðinni. Því við erum öll ein stór fjöl-
skylda. Engu máli skiptir hvaðan við komum eða hvert við
förum, við erum ein fjölskylda eða einn skapandi kraftur.
Sp.: Opnast minni okkar á einhvern hátt þegar við komum
yfir, hvort sem er við andlát eða í svefni, þ.e. ef við berum í
okkur meiri skilning en okkur birtist hér á jörðinni?
Sv.: Ertu að tala um svefn eða andlát?
Sp.: Hvort tveggja.
Sv.: Nefndu annað hvort, því ekki er hægt að tala um þetta
sem hið sama.
Sp.: I svefni.
Sv.: Já, minnið opnast oft, um verður að ræða meira
skynnæmi. En þegar snúið er aftur til jarðlíkamans og hugur
hans tekur aftur við stjórninni, þá slævist minnið. Minningin
er grafin d júpt í undirmeðvitundina. Ef þú ert að spyrja um
19