Morgunn - 01.06.1988, Page 26
SKRIFSTOFUSPJALL
í desember 1988, eru 70 ár liðin frá stofnun Sálarrann-
sóknafélags íslands. Að stofnun félagsins stóð hópur fólks
sem m.a. hafði starfað í Tilraunafélaginu.
í fararbroddi voru þeir Einar Kvaran og Haraldur Niels-
son, en þeir nutu stuðnings margra ágætra manna. Á
stefnuskrá þeirra félaga var m.a.: Að efla áhuga þjóðarinnar
á andlegum málum og fræða fólk um árangur af sálarrann-
sóknum einkum að því leyti, sem þær bentu á framhaldslíf
manna eftir dauðann, ogsamband við framliðna menn. Þeim
tilgangi hugðist félagið ná, með fyrirlestrum og umræðum og
útgáfu rita, eða stuðning að slíku. Einnig hugðust þeir stuðla
að sálarlífsrannsóknum með því að gera félagsmönnum
kleift að komast á sambandsfundi hjá góðum miðlum, inn-
lendum eða útlendum.
Vildu þeir félagar starfa á grundvelli þeirrar sannfæringar,
að samband hefði fengist við framliðna menn, og vildu þeir
efla og verja þá sannfæringu eins og best gæfist kostur.
Síðan þetta gerðist, hefur mikið vatn runnið til sjávar, og
má vitanlega deila um það hvort þeim er starfað hafa í
félaginu í gegnum tíðina, hefur tekist að vinna að þeim
málefnum sem upphaflega var áætlað.
24