Morgunn


Morgunn - 01.06.1988, Síða 27

Morgunn - 01.06.1988, Síða 27
morgunn SKRIFSTOFUSPJALL í dag er Sálarrannsóknafélag íslands félag sem telur um það bil 1000 félaga, auk þess að áhrifa þess gætir út um land, svo að í dag eru starfandi sjálfstæð félög Sálarrannsókna- manna á Suðurnesjum, Selfossi, Hafnarfirði, Akureyri, Sauðárkróki og Blönduósi. Auk þess að víða um land eru einstaklingar og smáhópar, sem alltaf fylgjast grannt með eilífðarmálunum. Sálarrannsóknafélag íslands á húsnæði í Garðastræti 8 H-hæð, og gerir það félaginu kleift að reka skrifstofu, sem annast þjónustu og upplýsingastörf fyrir félagið. Skrifstofan er opin alla virka daga milli kl. 13:00 og 17:00, lokað á föstudögum. Einnig er skrifstofan lokuð í júlí og ágúst. A skrifstofunni eða í gegnum síma félagsins er hægt að komast í samband við þá læknamiðla, sem starfa fyrir fé- lagið, og einnig þá gestamiðla sem hafa verið fengnir til starfa undanfarin ár, og þá aðallega frá Bretlandi. Mikil eftirspurn er alltaf eftir einkafundum og hefur þessvegna orðið að takmarka þátttöku fólks, þannig að eingöngu fé- lagsmenn eiga kost á einkafundum. Vaxandi áhugi virðist vera hjá fólki á að kynna sér þetta málefni, og kemur það m.a. fram í aukinni eftirspurn eftir miðilsfundum, nám- skeiðum og lestrarefni. Það mun þó öllum ljóst, að til þess að lélag sem þetta geti sinnt óskum félaga sinna, þá þarf að koma til vakandi áhugi félagsmanna og viljum við hér með hvetja ykkur kæru félagar, til að hafa samband við okkur, á félagsfundum, á skrifstofunni, í gegnum síma eða bréflega (Pósthólf 433 — 121 Rvík) ef þið hafið einhverjar góðar leiðbeiningar eða ábendingar. Éinnig eru vel þegnar allar þær frásagnir eða greinar, sem hugsanlega væru nýtanlegar í tímaritið Morgunn. — Og fari svo sem til var stofnað, þá á Sálarrannsóknafélag íslands ennþá verðugt verkefni fyrir höndum. Með bestu kveðjum Auður Hafsteinsdóttir 25

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.