Morgunn - 01.06.1988, Page 29
morgunn
SKÝRSLA FORSETA . . .
jafnframt koma á breytingum í stjórnun og verkaskiptingu
hjá félagi, þar sem hingað til, svo að segja öll störf og fram-
kvæmd þeirra höfðu í áraraðir hvílt á herðum örfárra ein-
staklinga í stjórn félagsins, nema til gagngerðra breytinga
kæmi, að því er varðaði stjórnun og endurskipulagningu
á félaginu.
Með þetta að leiðarljósi lét ég tilleiðast - settist niður og
tók saman uppkast að reglugerð með tilliti til laga S.R.F.Í.,
bæði að því er varðaði verksvið stjórnar og varastjórnar,
svo og fyrir starfslið skrifstofu félagsins. Ennfremur stofnun
og starfssvið hinna ýmsu nefnda, svo og ritnefndar, dreifa
hinum ýmsu verkefnum yfir á fleiri aðila og létta þannig
störf allra starfandi félagsmanna, með það í huga, að
..margar hendur vinna létt verk“.
Þessar ýmsu nefndir voru:
t- Útgáfunefnd tímaritsins Morguns (3ja manna).
2. Nefnd vegna bókavörslu (3ja manna).
3. Húsnefnd (3ja manna).
4. Húsbyggingarnefnd (3ja manna).
5. Fræðslunefnd (5 manna).
6. Rannsóknanefnd (4 manna).
7. Eftirlits- og tilraunanefnd (5 manna).
b. Upptöku- og sýninganefnd (3ja manna).
9. Móttökunefnd erlendra miðla og fyrirlesara (3ja
manna).
eða samtals 9 nefndir, með alls 32 manna starfsliði.
í reglugerð, sem samin var í sambandi við þessar nefndir
er í stórum dráttum kveðið á um starfstilhögun og starfs-
vettvang. Auðvitað tekur það sinn tíma að aðlaga sig breytt-
um vinnuháttum, enda hefur sú orðið raunin á, þar sem
sumar nefndir eru varla komnar í gang, en aftur aðrar þegar
tekið vel við sér. Svo má líka geta þess, að þessi skipulags-
breyting var ekki komin til aðila fyrr en um haustið 1987,
27