Morgunn


Morgunn - 01.06.1988, Síða 33

Morgunn - 01.06.1988, Síða 33
MORGUNN SKÝRSLA FORSETA . . . gera, byggðri á alfræðibók Gyldendal forlagsins og mun Örn og Örlygur hf. gefa bókina út. S.R.F.Í. var beðið um ýmsar upplýsingar, svo sem um tilurð og tilgang félagsins og hefi ég að beiðni stjórnarinnar svarað þessu bréfi. Ef litið er til baka yfir farinn veg þessa starfsárs, þá held ég að kostir verkaskiptingar innan félagsins séu hægt og bít- andi að koma í ljós og beri því í stórum dráttum að feta áfram þá braut, sem við lögðum út á. Eins og áður mun frú Auður Hafsteinsdóttir annast rekst- ur skrifstofunnar auk þess sem hún er eins konar tengiliöur, annars vegar við félagsmenn og hins vegar við stjórn félags- ins og hinar ýmsu nefndir. Það starf hefur hún unnið með hinni mestu prýði. Þakkir séu henni hér með færðar. Skrif- stofustjóri vinnur nú allan daginn. Einnig færi ég öllu öðru starfsfólki S.R.F.Í. þakkir fyrir óeigingjörn og tímafrek störf í þágu málefnisins og félags- ins. Enn hefur ekkert okkar fundið hinn algilda sannleika, svo leitinni ber að halda áfram í trausti þess að sá sem leitar finni, að sá sem knýr á, fyrir honum upp ljúkist og að sá sem biður af hreinum huga - honum muni að lokum veitast allt þetta einhvern tíma á eilífðarbrautinni. Að lokum vil ég þakka stjórn félagsins samstarfið, þakka ritstjóra Morguns Sigurbirni Svavarssyni, sem nú lætur af störfum ritstjóra tímaritsins eftir fjögurra ára starf, enn- fremur vil ég þakka núverandi ritara félagsins, frú Sigrúnu Oddsdóttur fyrir vel unnin störf að ritaramálum og harma að hún sér sér ekki fært að gegna þeim lengur. Öllum, sem starfað hafa að ýmsum nefndarstörfum innan félagsins, færi ég ennfremur bestu þakkir - svo og þeim sem nú ganga úr stjórn og varastjórn. Geir R. Tómasson. 31

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.