Morgunn - 01.06.1988, Qupperneq 36
HULDIR HEIMAR 1 SJÓNVARPI
MORC.UNN
ástæða þess að enn skuli vera til fólk, sem tekur þessa hluti af
alvöru. Er ekki einmitt líklegt að það sé vegna þess að þessi
atriði hafi nærst og viðhaldist af beinni reynslu og upplifun-
um fólksins sjálfs?
Flestir kannast við áifasteininn við Álfhólsveg í Kópavogi
og frásagnir af hremmingum þeim sem vegagerðarmenn og
eigendur lóða í kring um hann hafa lent í, ætluðu þeir eitt-
hvað að hrófla við honum. Hafa margir talið fullvíst að þar
byggju álfar, sem ekki yndu því raski sem þar átti stundum að
framkvæma. í myndinni kveður og heimildarmaður, sem er
mjög skyggn, að þar hafi fyrrum búið margir álfar, en nú sé
þar, líklega vegna umróts og umferðar manna, aðeins einn
öldungur eftir og fáeinir unglingar. Jafnframt var þess getið
að þessir síðustu íbúar steinsins væru að undirbúa brott-
flutning sinn og innan árs yrðu þarna engir álfar eftir. Væri
því óhætt að gera þær breytingar á vegarstæðinu, sem menn
kynnu að óska, að þeim tíma liðnum.
Fannst undirrituðum þetta athyglisvert atriði og íhugun-
arvert fyrir þá, sem þarna vildu gera breytingar, því fróðlegt
væri að taka saman og athuga í því tilfelli framgang aðgerða,
þ.e. fyrrum og þeirra er nú yrðu gerðar, að þessu ári liðnu.
Færi svo að allt gengi að óskum við hugsanlegar breytingar
nú, væri það þá ekki nokkur sönnun þess að þarna hafi
einhverjir okkur ósýnilegir haft hagsmuna að gæta og jafn-
framt segja nokkuð um áreiðanleika skyggnigáfunnar?
Þá var einkar skemmtilegt að sjá hvernig hægt var að beita
tækni myndbandsins við að lýsa skynjunum Erlu í sambandi
við huldufólkið, útliti og staðsetningu tívanna í Esjunni, og
bústöðum álfa og huldufólks í holtinu í kring um Kópa-
vogskirkju. Ekki var að sjá að þau væru háreyst húsakynni
þessara íbúa holtsins, enda sjálfsagt önnur viðhorfin og að-
stæðurnar í þeirra vídd. Og vart verður annað sagt en að
fallegir hafi þeir verið tívarnir í Esjunni og gaman að fá smá
nasasjón af öllu þessu lífi, sem í náttúrunni býr.
Texti myndarinnar var ágætlega gerður, þó í einstaka til-
fellum hafi hann verið nokkuð flókinn og vandgripinn, jafn-
vel fyrir þá, sem eitthvað höfðu kynnst þessum málum áður.
34