Morgunn - 01.06.1988, Page 41
morgunn
RANNSÓKNIR í DULSÁLARFRÆÐl .
Rússar - og aðrir að sjálfsögðu - myndu vissulega hafa
áhuga á mannlegri efnistilfæringu - hugsið ykkur ef hægt
væri að flytja skemmdarverkamenn frá A til B á þennan
hátt. Eitt víðkunnasta tilfelli af þessu tagi átti sér stað þegar
frú Cuppy var uppnumin á heimili sínu í Highbury í Norð-
ur-London og birtist á miðilsfundi í Conduit Street - og
þetta var ekkert smá afrek því frúin vó 127 kíló. Hinn frægi
Uri Geller hefur lýst því í sjálfsævisögu sinni hvernig hann
var skyndilega fluttur frá New York til heimilis lærimeistara
s*ns, Andrija Puharich, í um 35 mílna fjarlægð, en skyndi-
•egt hvarf og birting hans var vottfest af vitnum á báðum
stöðum.
Rússar hafa lengi haft áhuga á sálarafli sem hefur áhrif á
efni og orku og eiga til dæmi um slíkt, Ninu Kulagina, en
teknar voru myndir af því er hún hreyfði til hluti með hugar-
afli sínu einu saman. Vitað er að þeir eru að gera tilraunir
með þetta form, sem þeir kalla „orkuflutning“, en beiting
þess í hernaðarlegum tilgangi opnar fyrir skelfilegan mögu-
•eika - lömun lífsnauðsynlegra her- og bækistöðva o. s. frv.
með því að hafa áhrif á viðkvæmar straumrásir.
Light,
þýð. Guðjón Baldvinsson.
39