Morgunn - 01.06.1988, Qupperneq 42
Guðjón Baldvinsson:
UM BÓKINA
„VERAN Á 29 MEGARIÐUM“
Árið 1985 var gefin út í Bretlandi bók eftir John G. Fuller,
er nefnist áensku ,,The Ghost of 29 Megacycles,“ eða Veran
á 29 megariðum. Fjallar bókin um allóvenjulegt efni eða
tilraunir nokkurra sjálfstæðra vísindamanna við að koma á
talsambandi við fólk í heimi ,,látinna“, með aðstoð tækja er
vinna á háum tíðnisviðum.
John G. Fuller er kunnur af fyrri bókum sínum urn óút-
skýrð fyrirbæri og má þar til nefna bækurnar „Andinn í flugi
401“ og „Flugliðarnir sem ekki vildu deyja.“ Bækur hans
eru nokkurs konar skýrslur, hann leggur ekki fram beinar
sannanir en felur það í vald lesandans hvort hann vill trúa því
sem í bókunum birtist eða ekki.
í formála sínum að bókinni nefnir hann þó að ef það sem
þar er skráð hefði ekki við rök að styðjast þá vakni óhjá-
kvæmilega sú spurning hvers vegna í ósköpunum hópur
áreiðanlegra og virtra vísindamanna, eðlisfræðinga, raf-
eindafræðinga, lækna, prófessora, stjórnenda, klerka, dug-
andi kaupsýslumanna og annarra, hefur eytt hálfri milljón
dollara og tíu árum í rannsóknir á möguleikum þess að sanna
líf eftir dauðann með rafeindatækni, og hvers vegna þeir
komast að þeirri niðurstöðu að rökin fyrir slíkum möguleika
séu orðin býsna sterk.
Og hver eru svo efnistök bókarinnar? í henni segir frá því
að árið 1973 hófu tveir menn, Georg Meek og William
O’Neil að nafni, samstarf um að reyna að smíða tæki sem í
40