Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 43
morgunn
UM BÓKINA „VERAN Á 29 MEGARIÐUM"
gegn um háa tíðni gæti komið á sambandi við heim látinna.
Meek, sem alla ævi hafði starfað sem vélvirki og uppfinn-
ingamaður, helgaði alla starfskrafta sína og tækniþekkingu,
eftir að hann komst á eftirlaun, því að finna áþreifanlegar
sannanir fyrir lífinu fyrir handan. í þeim tilgangi hafði hann
sett sig í samband við ýmsa aðila sem unnu að rannsóknum á
þessu sviði og myndað þannig nokkra starfshópa. Og fljót-
lega upp úr því urðu þau atvik að leiðir þeirra O’Neils lágu
saman.
I einum starfshópanna skeði það svo eitt sinn skyndilega á
miðilsfundi að í gegn kom persóna, sem óskaði eftir því að
komast í samband við tæknimenn, til þess að þróa og smíða
tseki sem hægt væri að nota sem samskiptamiðil á milli fólks á
jörðunni og þess tilverustigs sem þessi persóna nú lifði á.
Þetta vakti áhuga Meeks, því þetta tengdist einmitt því, sem
hann og hans fólk var að vinna að. Það fyrsta sem þeir gerðu
var að leita sannana fyrir tilveru þess sem í gegn um miðilinn
kom. Hann hafði lifað hér á jörðunni undir nafninu prófess-
or Swann. Reyndist það og allt rétt vera sem fram kom um
hann á fundum hópsins. Dr. Swann hóf að koma á framfæri
tæknilegum upplýsingum um hvernig koma mætti á sam-
bandi eftir þessari leið. Þá þegar var Meek orðinn ákveðinn í
að reyna þetta. En þessar tilraunir kröfðust mikils fjármagns
°g aðeins fyrsti áfangi þeirra kostaði 70.000 dollara. Þá tókst
Meek að fá hjá auðugum vini sínum, Jim McDonnell, sem
var stjórnarformaður McDonnell Douglas verksmiðjanna,
en hann hafði um langan tíma haft áhuga á slíkum málum.
Eins og áður sagði hafði Meek tekist að finna snjallan
rafeinda- og útvarpsvirkja, ómenntaðan að vísu, en sem
hafði fengið ómetanlega reynslu í slíkum hlutum, þegar hann
Þjónaði sem hermaður í Pearl Harbour í seinni heimstyrj-
°ldinni og víðar eftir að heim kom. Og það sem meira var,
hann hafði til að bera mikla miðilshæfileika þó þeir væru
óbeislaðir. Ekki var O’Neil mikill fyrir mann að sjá, að sögn
Meeks, en hann hafði náð ótrúlegum árangri á þessu sviði og
t-d. tekist að koma á tveggja heima samræðum við ,,látna“ í
gegn um útvarpstækið sitt. Pó þeir hæfu samstarf þá þótti
41