Morgunn - 01.06.1988, Side 44
UM BÓKINA ..VF.RAN Á 29 MEGARIÐUM"
MORGUNN
Meek erfitt aö vinna með O’Neil. Hann var óútreiknanlegur
og sérvitur. Var Meek því oft við það að gefast upp. En á
móti kom að O’Neil var einhver sá besti miðill sem Meek
hafði fyrir hitt, hann bæði sá og heyrði í fólki fyrir handan,
var líkamningamiðill, auk þess að hafa ágæta þekkingu í
rafeindatækni.
O’Neil náði fyrst sambandi við látinn lækni sem kallaði sig
„Doc Nick“. Kvaðst hann hafa látist 5 árum áður. Doc Nick
gaf O’Neil ýmsar verðmætar upplýsingar um hvernig nota
mætti vissar útvarpsbylgjur sem orkuuppsprettu. Þegar
þessar útvarpsbylgjur væru tengdar segulbandstæki þá væri
mögulegt að ná þannig sambandi við hann. Með öðrum
orðum, hann var að benda O’Neil á hvernig hann gæti notað
útvarpið sitt til þess að heyra rödd læknisins í stað þess að
nota miðilshæfileika sína. Þetta var svo sem ekkert alveg
nýtt, ýmsir höfðu haldið því fram áður að þeir hefðu fengið
inn á tæki sín raddir að handan. En í engu þessara tilfella var
um bein tjáskipti að ræða og setningarnar voru einatt stuttar
og ótengdar. Þessar raddir voru kallaðar á ensku „raudive
voices“. Þær voru ógreinilegar því illa gekk að greina frá
þeim truflanir og hávaða á bylgjunum. En það var orðið ljóst
að fólk á öðrum tilverusviðum virtist geta notað þessar út-
varpsbylgjur sem orkuuppsprettu fyrir raddir sínar á okkar
tíðnisviði. Útvarpsbylgjurnar ollu því reyndar að erfitt var að
heyra raddirnar en þær voru þó óhjákvæmilegar.
Þegar hér var komið sögu var O’Neil kominn í samband
við annan mann fyrir handan, Georg Mueller að nafni og var
farinn að fá langar tæknilegar upplýsingar frá honum varð-
andi verkefnið. Um leið og Mueller fór að koma inn í
myndina hvarf Doc Nick smám saman, þar til þeir misstu
sambandið við hann. Mueller veitti þeim nægar upplýsingar
til þess að þeir gætu kannað tilvist hans hér á jörðunni. Hann
hafði verið fær eðlisfræðingur. Hann benti O’Neil á hvar
hann gæti fundið dánarvottorð sitt frá árinu 1967. Einnig gaf
hann upp 3 leynisímanúmer, sem hann hafði haft sem
starfsmaður hjá bandarísku leyniþjónustunni. Allt þetta
gátu þeir sannreynt. Meira að segja hringdu þeir í leyninúm-
42