Morgunn - 01.06.1988, Page 45
morgunn
UM IiÓKINA „VERAN Á 29 MEGARIÐUM"
enn, reyndar eftir miklar vangaveltur og þar á bæ urðu menn
að sjálfsögðu afar forviða og máttu þeir O’Neil og Meek
þakka fyrir að sleppa með skrekkinn og verða ekki sakaðir
uin njósnir, því enginn átti að vita um þessi símanúmer. Til
sönnunar átilveru sinni á jörðinni benti Mueller þeim einnig
á litla bók, sem hann hafði ritað árið 1947 og þá sérstaklega
akveðnar blaðsíður í henni, um ýmsa möguleika útvarps-
tækninnar, og kvað hann það myndu hjálpa þeim mikið við
að halda áfram sambandi þeirra. Meek lagði geysimikla
vinnu í að finna þessa bók, en tókst það ekki fyrr en nokkuð
löngu seinna. í apríl 1982 heldur Meek svoblaðamannafund
í Washington, þar sem hann kynnti það sem hann og aðstoð-
urfólk hans hafði verið að vinna að.
Meek hefur greinilega mjög mikinn áhuga á að finna leið
til þess að sanna fyrir fólki að lífið haldi áfram eftir hinn
líkamlega dauða. Með því, segir hann, væri hægt að minnka
sorgina og eftirsjána þegar ástvinir deyja. Það að vita um
áframhaldandi líf getur bætt okkur eigið framferði hérna
ruegin. Og þegar betra samband kemst á munum við geta
numið af vísdómi aldanna. Petta getur hjálpað til við að
sameina trú og vísindi og vonandi nær það því besta út úr
hvoru fyrir sig. í heiminum okkar eru vísindin metin meir en
hið sanna eðli mannsins.
Höfundur bókarinnar, John G. Fuller, rekur nákvæmlega
sönnunargögnin og hvernig hann fór að því að sannreyna
það sem hann fékk að vita um starf Meeks og O’Neils.
O’Neil átti við ákveðið vandamál að stríða í fyrstu, en það
voru verur sem fóru að yfirtaka hann og reyndar konu hans
líka. Lenti hann stundum í áköfum tilfellum af því tagi. Til
þess að þetta truflaði ekki þróunarverkefni þeirra taldi Meek
mjög mikilvægt að skapa einhverja vernd í kring um O’Neil.
Vfirleitt voru þetta neikvæðar verur og áleit Meek að þær
gætu verið O’Neil beinlínis hættulegar, þar sem hann var
Hveg óþjálfaður miðill og ekki fær um að hafa stjórn á þeim.
Hann aflaði sér því upplýsinga hjá breskum miðli, Berthu
Harris að nafni, og fékk hjá henni ráð gegn áhrifum vera frá
hinum lægri tilverustigum fyrir handan. Það var mikilvægt að
43