Morgunn - 01.06.1988, Side 47
morgunn
UM BÓKINA ..VERAN Á 29 MEGARIÐUM"
að halda slíkum verum frá þeim. Fólst það m.a. í ákveðnu
hegðana- og hugsanamynstri sem þau áttu að halda sig við
um sinn. Meek ráðlagði O’Neil að halda sig frá öllu dulrænu
um tíma, á meðan hann jafnaði sig á þessu. Honum var og
mikil nauðsyn á að fræðast sem mest um þessi mál svo hann
vissi betur um hvað hér væri á ferðinni.
Eftir þessa óskemmtilegu reynslu hægðist um í kring um
þau h jón. En u.þ.b. ári seinna er O’Neil sat í rannsóknastofu
sinni fór skyndilega líkamningur að birtast í einu horni
hennar. O'Neil stirðnaði upp af skelfingu og rétt gat stunið
uPp: ,,I guðanna bænum, hver ert þú?“ Og undrun hans varð
enn meiri þegar veran ávarpaði hann og kynnti sig sem Doc
Nick, fyrrverandi lækni og radio-amatör. Hann tilkynnti
O’Neil að hann ætlaði að leiðbeina honum í starfi hans. Svo
hvarf hann jafnskyndilega og hann hafði birst. En þetta var
upphafið að samvinnu þeirra. Doc Nick hóf að segja O’Neil
bl í heilun. Um sama leyti hóf einnig önnur vera er nefndi sig
Kincade, að sýna sig hjá honum. Meek til nokkurrar ánægju
sá hann að þær verur, sem nú voru farnar að koma í gegn hjá
O’Neil voru öllu þroskaðri og vitsmunalegri en þær sem fyrst
höfðu gert vart við sig. En tækjasmíði þeirra, í þeim tilgangi
að ná sambandi við annan heim gekk enn hægt. Meek hóf nú
að leita til manna í Evrópu, sem unnið höfðu að svipuðu
verkefni. Konstantin Raudive, þýskur maður, var jafnan
talinn faðir þessarar tækni, sem kölluð var „fyrirbæri raf-
eindaradda.“ Hann var látinn er hér var komið sögu og
leitaði Meek því til annars manns, Friedrich Jurgenson að
nafni, frá Svíþjóð, sem var nú leiðandi í þessum málum.
Hann hafði náð á segulband fjölmörgum röddum með marg-
Hslegum skilaboðum, sem hann taldi vera að handan. En
flest af því voru skilaboð um hvar mikilvæg skjöl væri að
finna og ýmis verðmæti o.þ.h., sem síðar var hægt að sanna
að rétt væri. Enn hafði ekki tekist að koma á beinum sam-
ræðum. Petta líktist einna helst lélegu talstöðvarsambandi á
niilli landa. Svo hér var ekki mikið að hafa fyrir Meek, og
sannarlega var ekki um neinar frambærilegar sannanir að
ræða. Þegar hér var komið hafði O’Neil aðallega áhuga á
45