Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 48
UM BÓKINA „VERAN Á 29 MEGARIÐUM4*
MORGUNN
heilunarstarfi sínu, með aðstoð Doc Nicks, svo tæknistörfin
sátu á hakanum. En svo kom að því að O’Neil fór að reyna að
hanna tæki, sem gæti numið rödd Doc Nicks, svo Meek gæti
einnig heyrt hann tala og sannfærst um að hann væri ekki
bara ímyndun hjá O’Neil. En það gekk illa, og ekkert virkaði
eins og því var ætlað. Fór svo að hann var við það að gefast
upp á þessu öllu saman. En þá skyndilega birtist honum nýr
maður að handan. Eitt kvöldið er hann var að bæta viði á
arineldinn hjá sér, finnur hann að hendi er lögð á öxl hans.
Hann snýr sér við og sér bláókunnugan mann standa fyrir
aftan sig. Honum bregður mjög við og telur að nú séu lík-
amningafyrirbærin að byrja aftur. ,,Hver ert þú?“ spyr hann.
„Hvað ertu að gera hér? Hvað viltu?“ „Pað skal ég segja þér
þegar þú hefur róast,“ segir sá ókunni. O’Neil kvaðst ekki
gera svo nema hann segi sér hvað hann sé að vilja þarna.
„Það er einfalt,“ segir hinn, „ég þarfnast aðstoðar þinnar við
að gera ýmsar tilraunir, svipaðs eðlis og þú ert að gera núna
án árangurs. Ég get hjálpað þér.“ „Það þýðir ekkert, því það
mun enginn trúa þessu hvort sem er,“ svarar O’Neil. „En ef
ég læt þig fá staðreyndir,“ segir sá aðkomni, svo sem nafn,
fyrra heimilisfang mitt og öll þau æviatriði, sem þú þarft til
þess að sanna hvað ég var þegar ég lifði á þínu tilverustigi?
Þarna var sem sagt kominn dr. George J. Mueller, sá er
nefndur var hér í upphafi og hann veitti þeim O’Neil og
Meek mikilvægar upplýsingar til sönnunar á fyrri tilveru
sinni, sem þeir gátu rakið og sannreynt. O’Neil var ákaflega
vantrúaður sjálfur á þetta í fyrstu og þrýsti á Meek um að
sannreyna þessar upplýsingar, að öðrum kosti myndi hann
líta á þetta sem hverja aðra ímyndun úr sér. Mueller og Doc
Nick virtust ekki vita hvor um annan. En þegar O’Neil sagði
Mueller frá Doc Nick, þá varð hann sér til undrunar var við
afbrýðisemi þeirra út í hvorn annan, en það var nokkuð sem
O’Neil hafði talið að hyrfi hjá fólki er það kæmi yfir um.
Er hér var komið sögu var O’Neil einnig farinn að huga að
hugsanlegri móttöku mynda að handan og nefndu þeir þær
hugmyndir Vidicom. Miklir og margvíslegir erfiðleikar
steðjuðu nú að þeim hjónum og um tíma leitaði O’Neil til
46