Morgunn - 01.06.1988, Page 49
morgunn
LÍM BÓKINA „VERAN Á 29 MEGARIÐUM”
vinar síns, sem var geðlæknir, því hann hélt að hann væri að
missa vitið. Sá stappaði stálinu í hann, svo hann gat haldið
verkinu áfram.
Mueller benti O’Neil m.a. á að þeir væru enn á skeiði
kristalstækja, sem öll væru hlaðin rafmagni og óáreiðanleg,
en þó möguleg til sambands.
Visst vandamál skapaðist og við það að Doc Nick og
Mueller gáfu O’Neil stundum upplýsingar sem stönguðust á.
Doc Nick kvað vera til þúsundir tíðnisviða, sem gætu og
myndu verða heyranleg á jörðunni þegar hægt yrði að koma
Spirocom-tækninni í fulla starfsemi. Tíðnisviðin saman-
standa svo af þúsundum aðskilinqa rása, sem hægt er að stilla
inn á hverja fyrir sig, þar sem þær eru allar óháðar hver
annarri. Það sem þú þarft að gera, sagði hann við O’Neil, eitt
sinn, er að sía, ryðja og forðast þau tíðnisvið, sem við köllum
alheimssvið. Með þeim á ég við þau sem eru grófgerðari og
opin fyrir áhrifum margvíslegra vera, sem notfæra sér þau til
sambands og gera það þar með óskiljanlegt. Með öðrum
orðum: hundruð radda tala í einu — eins og þegar margar
útvarpsstöðvar reyna að útvarpa á sömu tíðni.
Doc Nick og O’Neil voru nú farnir að vinna að nýjum
straumrásum og á tíðnisviðum sem O’Neil vonaðist eftir að
gæfu árangur. Þær raddir sem hingað til hafði verið hægt að
ná höfðu komið á segulbandsspólur og það var ekki hægt að
heyra þær nema að spila segulbandsspóluna aftur. Smám
saman færðust þeir þó nær markinu og svo skeði það seint
um nótt, 21. október 1977, þegar O’Neil var að stilla tæki
sín, að hann heyrði skyndilega rödd, mitt í öllu ískrinu og
gólinu í tækinu. Hún var eins og í vélmenni en engu að síður
rödd. O’Neil bað hana að endurtaka það sem hún hafði sagt
°g gerði hún það. Hann hafði oft verið hræddur áður en þó
aldrei sem nú. Hann var sannfærður um að hér væru á
ferðinni heyranleg orð frá öðru tilverustigi. Og það kom í
ljós að svo var, því hér var Dock Nick á ferðinni. Petta fyrsta
samtal þeirra í gegn um tækin fær sjálfsagt ekki neinn sess í
bókmenntasögunni en það var á þessa leið: Reyndu aftur,
Bill (O’Neil). Allt í lagi. Heyrirðu í mér núna Bill? —
47