Morgunn - 01.06.1988, Page 60
Guöjón Baldvinsson:
HEIMSÓKN MIÐILSINS
GLADYS FIELDHOUSE
TIL SRFÍ1988
Dagana 5.—20. maí s. 1. heimsótti miðillinn Gladys Field-
house félagið og hélt skyggnilýsinga- og fræðslufundi á veg-
um þess. Var þetta í 3ja sinn sem hún kemur til starfa fyrir
félagið.
Gladys hefur mikla og góða hæfileika sem miðill, hún er
dulskyggn, hefur dulheyrn og dulnæmi, þ. e. hún skynjar til-
finningar þeirra sem fyrir handan eru.
Hún starfar sjálfstætt sem miðill og hefur gert svo allt frá
því um tvítugs aldur. Eins og fleiri í hennar stétt hefur hún
ferðast vítt og breitt um heiminn í starfi sínu sem miðill og
mætti þar til nefna lönd eins og Holland, Þýskaland, Aust-
urríki, Kanada og Bandaríkin. Hefur hún í þessum löndum
komið fram bæði í útvarpi og sjónvarpi, auk þess sent mörg
viðtöl hafa birst við hana í blöðum.
Allir fundirnir hjá Gladys voru vel sóttir. A fyrsta skyggni-
lýsingafundi hennar, sem haldinn var mánudaginn 9. maí,
komu í gegn 18 persónur að handan og þar af þekktust 14
örugglega. 5 íslensk nöfn kom hún einnig með, sem gestir
gátu staðfest sem rétt og þeim íengd, en þau voru að sjálf-
sögðu nefnd í tengslum við önnur sönnunaratriði.
Annar skyggnilýsingafundur hennar var svo haldinn
fimmtudaginn 12. maí, en þar hafði Gladys nokkuð annan
hátt á en á þeim fyrri. Batt hún fyrir augu sér og gekk svo
frá að öruggt væri að hún sæi engan og ekkert með sínum
58