Morgunn


Morgunn - 01.06.1988, Page 63

Morgunn - 01.06.1988, Page 63
morgunn HEIMSÓKN MIÐILSINS GLADYS . . . sem ilmi í kring um blóm eða loga um kertakveik. Fólk til forna nefndi þetta fyrirbæri bóluna sem sálin flýtur í. Gla- dys kvað áruna fylgja okkur frá vöggu til grafar. Hún er löngu tilkomin áður en við fæðumst og fylgir okkur lengi eftir dauðann. Ráðlagði Gladys fólki að prófa að loka aug- unum og reyna að finna eigin liti. Bað hún einn fundargesta, unga stúlku, að koma upp að púltinu til sín og ætlaði hún að lýsa helstu litum áru hennar sem dæmi. Áruna kvað hún jafnan fara eftir þeim tilfinning- um og skapi sem viðkomandi væri í þá stundina. Hún kvaðst f- d. sjá það á áru stúlkunnar að hún væri í góðu jafnvægi því hún skipti hægt litum. Ef viðkomandi reiðist þá breytast litirnir og hreyfast ört. Gladys spurði stúlkuna hverjir væru hennar uppáhaldslitir og kvað hún það vera rautt og bleikt. Reyndist það og vera þeir litir sem ríkjandi voru í áru hennar. „Engar tvær árur eru eins og það er einstaklings- bundið hvaða merkingu hver litur hefur“. Gladys kvað stúlkuna hafa sterkan rauðan og bleikan lit í árunni um þessar mundir. Þeir litir gætu haldist hjá henni í nokkur ár en þeir breytast með auknum þroska. Og svo myndi einnig fara um þá liti sem hún héldi upp á hverju sinni. Gladys sagði að þeir litir, sem stúlkan nefndi væru henni mikilvæg- lr, rautt gæfi henni orku og hafði hún á tilfinningunni að stúlkan þyrfti stundum á aukinni orku að halda. Hún stað- festi að það væri rétt. Gladys kvað rauða litinn hjálpa stúlk- unni við að fá þá orku sem hún þyrfti. Hann tengist því lífi sem hún lifir, matnum sem hún borðar og hugsunum hennar. Þá sagðist Gladys fá þær upplýsingar að handan að bleiki litur stúlkunnar væri hennar andlegi litur. Hún kvað hana hugsa alvarlega um lífið og tilveruna, einnig fólkið sem farið er yfir landamæri heimanna. Staðfesti stúlkan að þetta væri rétt. Gladys vildi taka fram að þegar hún gæfi svona upplýsing- ar þá læsi hún ekki eingöngu í áruna, heldur notaðist hún líka við miðilshæfileika sína. Hún nefndi að það væru ef- laust margir fleiri sem myndu telja fyrr nefnda liti, sína uppáhaldsliti. En þeir gætu þýtt eitthvað allt annað fyrir við- 61

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.