Morgunn


Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 64

Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 64
HEIMSÓKN MIÐILSINS GLADYS . . . MORGUNN komandi manneskju. „Takið þess vegna ekki þýðingu lit- anna sem gefna“, sagði hún. „Það er svo einstaklingsbundið hver hún er. Allir litir geta verið fallegir, t. d. í náttúrunni. En þegar við reiðumst þá verður fallegi rauði liturinn okkar eins og óhreinn. Litirnir eru fallegir en ekki alltaf það sem við gerum við þá. Hafið þetta í huga og þá halda þeir áfram að vera fallegir“. Þegar Gladys hóf blómalesturinn þá nefndi hún að mörg yndisleg blóm yxu fyrir handan og blóm væru henni því ákaflega lífgefandi. Að lesa í sand er svolítið annars eðlis en blómalestur. Dulrænt fólk í austurlöndum hefur jafnan getað lesið ýmis- legt úr sandinum, og gerir það gjarnan fyrir ferðamenn, sem þá setja ýmist hendur eða fætur í sandinn. „Eitt sinn kom til mín“, sagði Gladys, „stúlka sem hafði dvalið í austurlöndum um langan tíma. Hún hafði eitt sinn látið lesa svona í sand fyrir sig og eftir því sem á ævi hennar leið kom æ betur í ljós að sá lestur hafði verið réttur. Átti það t. d. við um í hvaða löndum hún átti eftir að búa síðar, manninn sem hún átti eftir að giftast, hvað þau yrðu gift lengi, hvenær hann dæi og hvernig hún færi til Englands eft- ir það“. „Hún kom til mín“, sagði Gladys, „vegna mikilla veikinda, en einnig því hafði verið spáð í sandlestrinum“. Gladys kvaðst ekki vera svona fær að spá í sand, enda iðkaði hún ekki spádóma, heldur læsi hún persónugerð fólks úr sandinum. Hún tók og fram að vel gæti skeð að hún tengdist látnum ættingja þess, sem hún væri að lesa fyrir hverju sinni, en það væri þó alls ekki það sem sandlestur snerist um. Miðlar vinna á mismunandi stigi vitundar eftir því hvað þeir eru að gera hverju sinni. Gladys kvað mega líkja heil- anum við lög í lauk, miðlarnir vinna á þessum mismunandi lögum. Þegar miðillinn beitir skyggni og öðrum miðilshæfi- leikum sínum þá fer hann, ef svo má segja, innar í laukinn. Þess má að lokum geta að eins og í fyrri heimsóknum sín- um þá var Gladys einnig með fjölmarga einkafundi fyrir fé- lagsmenn. 62
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.