Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Síða 10

Morgunn - 01.12.1990, Síða 10
MORGUNN Að hafa hugrekki til að syrgja SR: Hvað fékk þig til þess að velja það að starfa með hinum syrgjandi frekar en allar aðrar greinar félagslegrar þjónustu og sálfræði? JT: Bróðir minn lést í bílslysi þegar ég var sautján ára gömul. Það var mikið áfall. Eg hafði enga reynslu haft af dauðanum áður. Ekki var um neina ráðgjöf að ræða sem ég gat leitað til. Að minni ósk, þá sendu foreldrar mínir mig til sálfræðings en hann talaði aldrei í alvöru við mig um dauða bróður míns. Svo sorg mín varði árum saman þangað til ég tók þátt í gestalt-meðferðinni hjá Jim Sinkin, vel þekktum gestalt-meðferðar fræðingi. Ég sagði frá draumi... draumi þar sem ég var svo reið að ég reyndi að keyra á fólk. Ég var í uppnámi yfir að mig skyldi dreyma slíkt. Jim vildi komast að því hvað væri að eiga sér stað innra með mér þegar mig dreymdi svona. Þetta var sennilega í fyrsta sinn sem ég nokkurn tímann viðurkenndi að búa yfir þessum ótta en jafnvel þá var athugasemd mín meira í ætt við yfirborðslega yfirlýsingu en meðvitaða viðurkenningu á tilfinningum mínum vegna þess að ég skildi þær ekki enn. Jim dró fram stól og sagði mér að ímynda mér að bróðir minn sæti í honum. Segðu honum að þú sért honum reið fyrir að deyja, sagði hann. Mér þótti þetta hræðilegt. Hvernig getur maður verið reiður látinni manneskju? Þessi reynsla skelfdi mig ákaflega en ég treysti Jim fuLlkomlega. Svo „ég sagði" bróð- ur mínum að ég væri honum reið fyrir að hafa dáið. SR: Hver urðu tilfinningaleg viðbrögð þín við þessari æfingu? JT: Heilmikið af tilfinningum braust upp á yfirborðið. Ég tjáði margar af þeim tilfinningum sem ég hafði borið þegar ég var sautján ára, eftir að bróðir minn lést: gremju, svik og fráhvarf. T.d. þá hafði hann lofað því að kenna mér hvernig ég ætti að haga mér gagnvart strákum og ég var honum gröm fyrir að standa ekki við það loforð sitt. Jim bað mig síðan að kveðja bróður minn. Ég sagði honum að það gæti ég ekki gert. Ég hélt í alvöru að ef ég gerði það, þá myndu skella á þrumur og eldingar eða að það yrði heimsendir. En 8

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.