Morgunn - 01.12.1990, Blaðsíða 65
MORGUNN
Spíritismi og dultrúarhreyfingar á fslandi
Sigurður Nordal hefja að krítísera spíritismann og lenda
þeir í ritdeilu í blöðum, hann og Einar Kvaran. Halldór
Laxness skrifar einnig gegn spíritismanum. Fyrirstéttin
verður ekki eins áberandi í félaginu og þegar það var að
hefjast til áhrifa og virðingar. Einar Kvaran sem var við
stjórnvölinn var orðinn aldraður og ekkert nýtt kemur fram
í þessurn efnum.
Þá upphefst það sem kalla má prestatímabilið. Það ein-
kennist af mönnum með áhrif og má þar til nefna menn eins
og Kjartan Daníelsson, Svein Víking, Sigurð Hauk Guð-
j ónsson, o.fl. Þessir menn voru krítískir, þeir vildu að f élagið
hefði yfirbragð fræðslu og vísinda, vildu síður byggja á
miðlum. Þeir vara fólk við að trúa á anda gagnrýnilaust.
Þetta tímabil endar svo við lok 7. áratugarins.
Þá hefst nýtt tímabil sem einkennist af því að félagið stend-
ur á krossgötum. Það tekur upp huglækningar og fyrirbæn-
ir, og ræður rniðla meir en áður. Hvert stefnir nú? Það vitið
þið betur en ég, sagði Pétur að lokum.
Örn Guðmundsson, þáverandi formaður Sálarrann-
sóknafélagsins þakkaði Dr. Pétri fyrir fróðlegt erindi og
benti á að ef niðurstaðan væri sú að félagið hafi stuðlað að
því að íslendingar telji sig hamingjusama þjóð, þá megi það
vel við una. Það er félag fólks sem leitar sannleikans þó það
hafi svo sem ekki fundið neinn endanlegan sannleika. Það
er á stefnu skrá félagsins að kynna sér stöðu þess í framtíð-
inni og er það liður í að athuga hvaða félagið hefur gert og
hvaða áhrif það hefur haft og út frá því mætti ráða framtíð-
arstefnuna. Þetta er það sem er verið að glínia við núna.
- Er hér var komið á fundinum var fólki boðið upp á kaffi
og að gera fyrirspurnir ef það vildi.
1. fsp.: Hvaða álit hefur þú á því að við séum á villigötum
í þróun félagsins, hvað varðar niálefni, við séuni t.d. komnir
of mikið yfir á lækninga sviðið?
Sv.: Pétur bendir á að hann hafi tekið fram í upphafi að
hann geti ekki svarað svona spurningum. Hann þekki lítið
til þessa síðasta tíniabils félagsins.
2. fsp.: Hefur verið gerð könnun á tengslum vísinda og
dulspeki?
63