Morgunn - 01.12.1990, Blaðsíða 51
MORGUNN
Hátíðir fyrir handan
náttúrulegu lögmáli, því á jólum er fæðingardagur sólar-
innar. Þessi tími er valinn vegna þess að öll erum við tengd
kynþáttum sem eiga sér trúarbrögð sem stofnað var til
samkvæmt náttúrulögmálum.
Fyrir okkur var hátíðin vegna fæðingar sólarinnar sú
mesta þeirra allra vegna þess að hún gaf til kynna upphaf
nýs tímabils. Hún er endir hringrásar og upphaf nýrrar.
Þar sem að þessar hátíðir voru haldnar í heimi efnisins, þá
eru þær haldnar hátíðlegar í heimi andans. Þær hafa nú
fengið andlegan tilgang og í stað þess að fagna dögun hins
nýja lífs, þá notum við þær nú til þess að hörfa frá heimi
efnisins til þess að öðlast njijan þrótt andans, svo okkur
verði unnt að færa nýtt ljós inn í ykkar heim.
SP: Fyrir hvern er hátíðin haldin?
SB: Það er aðallega fyrir indíánana og þá leiðbeinendur
sem tilheyra eldri lynþáttunum. Allur hinn vestræni heim-
ur er ungur í samanburði við þessa kynþætti og hátíð okkar
hefur ekki neina þýðingu fyrir þá sem búa í vestur hlutan-
um.
A páskum fögnum við upprisu alls lífs. Þeir eru tákn upp-
risu allra heima til sameiningar í bænum allra þeirra sem
biðj a þess að heimur ykkar megi rísa upp úr eymd, sársauka,
sorg, dapurleika og þjáningu, rísa upp til fullkomnara lífs,
upp til síns raunverulega lífs, svo að dapurleiki og tár hverfi
á braut, svo eymd og hungur verði yfirunnið og tómir
magar megi verða mettir.
Heimur ykkar þarfnast mjög upprisu en lögmál andans
mikla er smám saman að byrja að verka þar sem fleiri og
fleiri af bör num hans bj óða sig fram til þj ónustu við verkefni
hans og kraftar efnisins eru hraktir á brott.
Eg fer til baka ásamt mörgum fleirum til þeirra vídda þar
sem ég á raunverulega heima, til þess að njóta, mjög
skamma stund, gleðinnar í lífi andans, sem er slík að það er
ykkur ógjörningur að skilja hana í takmarkaðri tjáningu
ykkar, til að sjá andlit þeirra sem við elskum, þeirra sem eru
kennarar okkar, til að nema af vísdómi þeirra, fá hlutdeild í
49