Morgunn - 01.12.1990, Blaðsíða 57
MORGUNN
Óvenjuleg flugferð
Nú, þú spurðir líka hvar þessi eyja væri. Flugfreyjan sagði
til að róa þig að hún væri á Ermasundi. Þessi eyja er staður
þangað sem allir eru fluttir sem látast af slysförum eða verða
bráðkvaddir. Flugstöðin er byggð upp og innréttuð eftir því
sem þörf er á hverju sinni. „Jæja," spurði Jóhannes að
lokum, „er forvitni þinni þá svalað í bili, Karl minn?"
„Já, svona nokkurn veginn. En hvað tekur nú við hjá mér,"
spurði ég loks.
„Þú verður sendur á hvíldar- og hressingarhæli um nokk-
urtskeiðog síðan ganga hlutirnir fyrirsigá venjuleganhátt,
en ég útskýri það ekki nánar."
í þessu teygði Jóhannes sig í innanhússsíma og tilkynnti
að ég væri tilbúinn til þess að halda áfram. Hann sagði mér
síðan að viðtalinu væri lokið og sagði mér að labba fram á
gang, þar yrði tekið á móti mér.
Eg reis á fætur, Jóhannes gerði það líka, og ég rétti honum
hönd mína í kveðjuskyni. Hann tók þéttingsfast í hana á
móti og sagði: „Vertu sæll og gakktu djarfur og ódeigur inn
í nýjan heim og Guð veri með þér."
„Og með þér," sagði ég og gekk til dyra. Eg átti bara eftir
að loka á eftir mér er hann bað mig að hinkra aðeins.
„Heyrðu Karl, ég gleymdi að svara þér því hvað eyjan héti.
Hún heitir Astralterra."
55