Morgunn - 01.12.1990, Blaðsíða 37
Dion Fortune:
SKUGGABALDRAR
Höfundur ræðir um auglýsingar ýmissa aðila ogfélaga íAmer-
íku sem gera út d dulfræðina og lofa fólki allskonar hlutum d
námskeiðum og nefnir sem dæmi eftirfarandi auglýsingar:
„Áttu í vandræðum með heilsuna, ástina, peningana.
Leyfðu mér að hjálpa þér. Engin mistök, ákveðnum leið-
beiningum fylgt. Einstaklingsmeðferð, sprenglært fólk.
Fiinm dollarar verða að fylgja fyrirspurn. Peningar endur-
greiddir ef þú ert ekki ánægður með árangurinn/'
„Hvað langar þig í? Hvað svo sein það er, þá getum við
hjálpað þér að ná í það. Gefðu okkur bara tækifæri með
því að skrifa eftir bæklingnum „þokunni eytt.” Alveg
ókeypis. Þú verður ánægður."
„Dáleiðing. Viltu læra aðferð til að komast yfir þann kraft
sein laðar að sér menn og konur, hefur áhrif á hugsanir
þeirra, stjórnar löngunum þeirra og gerir þig að ráðandi
aðila í hvaða aðstöðu sem er. Þú getur dáleitt fólk sam-
stundis... Þessi ókeypis bók okkar aflijúpar leyndardóm
dáleiðslunnar. Hún hæfir öllum. Koslar ekkert. Við gefum
hana til að kynna skólann okkar."
Þessar auglýsingar eru teknar af handahófi úr hópi 63
annarra sama eðlis úr einu tölublaði vinsæls amerísks viku-
rits.
Skoðum þær nú með augum þess sem þeim er ekki beint
til, þ.e. persónunnar sem lesandanum er ætlað að ná valdi
yfir. Hver verður staða viðkomandi ef lesandinn vill brjóta
10. boðorðið og krækja í konu nágranna síns, uxa hans, asna
eða eitthvað annað honum viðkomandi. Cerum ráð fyrir að
ástundunarsamur nemandi þessara aðferða vilji fá eitthvað
sem hann á engan rétt á, að hann sé röngu megin við lögin.
35