Morgunn - 01.12.1990, Page 30
MORGUNN
Spíritisminn í fortíð og framtíð
framtíðin færi okkur sameinaðan spíritisma. Sundraður
spíritismi er veikur spíritismi.
A hinum ýmsu tímum í gegnum aldirnar hefur maðurinn
misst sýn af andanum um stundarsakir vegna efnishyggju,
kringumstæðna sem leiða til stríða, hallæra, ofsókna og svo
framvegis.
Ut úr þessum efnisviði illskunnar hefur spíritismanum
verið þrýst til endurvakningar og fæðingar.
Dögun nýrrar vakningar andlegra mála er augljós um
allan heim. Við getum öll greint sönnunarmerki þess. Efn-
islegir veggir sem skildu manninn frá bróður sínum eru nú
fjarlægðir vegna nýrrar hugsunar. Heftandi kúgun er skol-
að burt á öldu tjáningarfrelsis í hugsun, orði og verki.
Spíritisminn hefur afar mikilvægu hlutverki að gegna í
framtíð mannkynsins af því að hann flytur sannanir fyrir
því að maðurinn lifir dauðann auk þess sem hann er vísindi
og trú.
Spíritisminn inniheldur öll nauðsynleg og fullgild svör við
spurningum þessarar nútíma framfaraaldar.
Spíritisminn er marghliða demantur. Við verðum að halda
honum vegna þess að hann lýsir af geisladýrð sannleikans
sem getur lýst og frætt heiminn.
J.A. Drive
Jörðin er að deyja úr skömm
Það sem spíritisminn hefur gert fyrir mig er að gera mér
grein fyrir því að lífið er eilíft.
Eg er nú fær um að hætta að hugsa um dauðann á hinn
hefðbundna sjúklega hátt sem er tíðkaður á öllum stigum
helgisiða hans og fara að horfast í augu við hann sem vin,
vitandi það að hann er aðeins flutningur á mikið betri stað
um leið og allur sársauki og pína þessarar víddar verður
eftir, bæði huglæg og líkamleg.
Hann hefur a.m.k. fyllt rnitt líf tilgangi og frelsi, gert mér
fært að tjá mig innan hans og utan, skiija sjálfan mig og
28