Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Síða 32

Morgunn - 01.12.1990, Síða 32
MORGUNN Spíritisminn í fortíð og framtíð spíritistar, þá berum við þá ábyrgð að vera verndarar þessa sannleika. Ég legg mig fram um að reyna að vera umburðarlyndur og þolinmóður gagnvart öllum sem ég hitti, að viðurkenna mismunandi hugmyndir fólks um lífið án þess þó að þurfa endilega að vera sammála því. Ekki að vera blindaður á það hvernig raunveruleikinn geti verið þar sem sérhver hefur mismunandi skynjun og gera mér grein fyrir að því meira semégveit, þvíminna veitég,aðþaðsem égtrúi núna,mun ekki endilega verða það sem ég trúi á morgun, í næstu viku eða á næsta ári. Það er aðeins til einn Guð en maðurinn hefur í hroka sínum sett sjálfan sig á stall með því að leika Guð og eyði- leggja hina sömu jörð og við lifum á. Með sífelldri eyðslu og mengun, misnotkun og skorti á kærleika, hefur hann veitt þau högg sem þarf til þess að eyðileggja fallegu plánetuna okkar. Hún er að deyja úr skömm... og þangað til við komum aftur með kærleika og umhyggju, þá mun hún halda áfram snúningi sínum niður á við. Við ættum að bera umhyggju fyrir öllu fólki án tiUits til litarháttar, trúar eða stjórnmála, hvort sem það er stórvaxið, lágvaxið, feitt, grannt, lyktandi eða öðruvfsi máli farið. Hvort sem það er vanskapað eða hreyfihamlað. Þýð.: G.B. 30

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.