Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Síða 38

Morgunn - 01.12.1990, Síða 38
SkuRgabaldrar MORGUNN Eða einfaldlega elski vald valdsins vegna. Hvernig er að vera undir áhrifum þessara aðferða og hvaða afleiðingar kunna þær að hafa fyrir þann'sem fyrir þeim verður. Mig langar að segja ykkur frá minni eigin reynslu, þó hún sé sársaukafull, því einhver verður jú að stíga fram og afhjúpa þessa misnotkun sem aðeins getur blómgast vegna skilningsleysis á þýðingu þeirra. Þegar ég var ung stúlka á tvítugsaldri, þá réð ég mig hjá konu sem ég veit núna að hlýtur að hafa haft verulega þekkingu á dulspeki en hennar hafði hún aflað sér með langri dvöl á Indlandi og þessa þekkingu notaði hún til þess að sá fræjum sem ég gat engan veginn varast á þeim tíma en í Ijósi síðari vitneskju rninnar hef farið að skilja. Það var venja hennar að stjórna starfsliði sínu með þekkingu sinni á hugarafli og árangur hennar var verulegur í því að ná fram undarlegum andlegum niðurbrotum á meðal starfs- fólksins. Eg hafði ekki verið lengi hjá henni þegar hún óskaði eftir því að ég bæri vitni í dómsmáli. Hún var ákaflega skapmikil kona og hafði sagt upp starfsmanni fyrirvaralaust og án þess að greiða honum laun og hann stefndi henni því vegna vangoldinna greiðslna. Hún vildi að ég vitnaði urn það að hegðun hans hefði verið slík að ómögulegt hefði verið annað en að segja honum upp starfinu. Aðferð hennar við að byggja upp vitnisburð minn var sú að horfa í augu mér með einbeittu augnaráði og segja: „Þetta og þetta átti sér stað." Til allrar hamingju fyrir alla aðila, þá hafði ég haldið dagbók og hafði því skýrslu dag frá degi um framrás at- burða. Ef ég hefði ekki haft hana, þá veit ég ekki hver staða mín hefði orðið. Þegar úrtakinu lauk var ég dösuð og úr- vinda, fór beint upp í rúm, lagðist þar fyrir í öllum fötunum og svaf djúpum magnvana svefni til næsta morguns. Eg hygg að ég hafi sofið í um 15 klst. Fljótlega eftir að þetta átti sér stað vildi hún aftur að ég bæri vitni. Hún vildi losna við það sem ég vissi nú þegar og reyndi að finna réttlætingu fyrir þeim gerðum sínum. Hún endurtók fyrri aðferðir sínar en að þessu sinni hafði ég enga dagbók að styðjast við og mér til mikillar skapraunar stóð 36

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.