Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Side 40

Morgunn - 01.12.1990, Side 40
MORCUNN Skuggabaldrar__________ slökkva ljósin og var- aði mig við því að fangelsisstjórinn, eins og við kölluðum vinnuveitanda minn, hefði komist að því hver hefði skipulagt flótta frænku og ég skyldi vera viðbúin vandræðum. Þar sem ég vissi að hún var mjög hefnigjörn að eðlisfari, þá var mér ljóst að eina úrræði mitt væri flótti, en flótti varð bara ekki svo auðveldlega framkvæmdur. Þessi stofnun sem ég starf- aði hj á var menntunarstofnun, svo það varð að láta vita með fyrirvara áður en maður færi. Ég hlakkaði ekki til þess að fullnægja því skilyrði undir ótakmarkaðri stjórn illgjarnrar konu. Svo ég beið eftir tækifæri sem réttlæti útgöngu mína. Hamslausir skapsmunir vinnuveitanda míns urðu til þess að sú bið varð ekki löng. Ég var lengi á fótum næsta kvöld við að pakka niður dótinu niínu, svo ég væri tilbúin fyrir væntanlegan flótta minn þegar inn í herbergið kom annar starfsmaður, stúlka sem sjaldan talaði, átti enga vini og vann störf sín eins og vélmenni. Ég hafði aldrei átt nein samskipti við hana svo ég var meira en lítið undrandi yfir heimsókn hennar. En ég fékk samt sem áður fljótt skýringu á henni. - „Þú ert að fara," sagði hún. Ég játti því. - „Farðu þá án þess að hitta fangelsisstjórann. Þú kemst ekki burt ef þú gerir það. Ég hef reynt það mörgum sinnum en ég get ekki farið." En ég var ung og treysti á óreyndan styrkleika minn án þess að meta nokkuð þau öfl sem stefnt var gegn mér og næsta morgunn klæddi ég mig upp fyrir ferðina og með tösku í hendi fór ég niður og bauð hinum hræðilega vinnu- veitanda mínum byrginn í greni sínu, staðráðin í að segja 38

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.