Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Síða 42

Morgunn - 01.12.1990, Síða 42
MORGUNN Sku^abaldrar míns. Hvers vegna ég greip ekki til þess augljósa úrræðis að flýja veit ég ekki en þegar maður gerir sér grein fyrir að eitthvað óvenjulegt er á seyði, þá er maður meira og minna tofraður, nákvæmlega eins og fuglinn sem ekki getur gripið til vængjanna frammi fyrir snákinum, maður getur vart hrært legg né lið. Brátt fór allt að verða hálf óraunverulegt. Það eina sem ég vissi var að égyrði að varðveita heilleika sálar minnar, hvað svo sem það kostaði. Um leið og ég viðurkenndi ásakanir hennar, þá yrði ég búin að vera. Við héldum áfrani víxlsöng okkar. En nú tóku kraftar mínir að þverra. Eg fékk skyndilega þá einkennilegu tilfinningu yfir mig að sjónsvið mitt væri að þrengjast. Þetta hygg ég að séu afgerandi einkenni móður- sýki. Ut undan mér sá ég tvo veggi myrkurs læðast upp að mér að sitt hvorri hlið aftan frá, eins og ég stæði með bakið að horni einhvers skýlis sem smám saman væri verið að loka mig inni í. Eg vissi að þegar þessir tveir veggir mættust, þá væri ég búin að vera. Þá gerðist nokkuð einkennilegt. 1 fjarska heyrði ég innri rödd segja: „Láttu sem þú sért sigruð áður en þú ert það í raun og veru. Þá hættir hún árásunum og þú kemst í burtu." Hvaða rödd þetta var hef ég aldrei komist að. Ég fór samstundis eftir þessu ráði. Með tunguna út í ann- arri kinninni bað ég vinnuveitanda minn afsökunar á öllu sem ég hefði gert eða myndi gera. Ég lofaði að vera kyrr í starfi mínu og láta b'tið á mér bera alla mína ævidaga. Ég man að ég kraup fyrir framan hana og hún malaði af sjálfs- ánægju yfir mér, ákaflega ánægð yfir morgunverki sínu, sem hún reyndar hafði fulla ástæðu til. Síðan leyfði hún mér að fara og ég fór upp í herbergi mitt oglagðist upp í rúm. En hvílt mig gat ég ekki fyrr en ég hafði skrifað henni bréf. Hvert innihald þess bréfs var hef ég ekki hugmynd um. Um leið og ég hafði skrifað það og látið það þar sem hún myndi ná í það, féll ég í einhvers konar doða og lá í því ástandi með hugann einhvers staðar víðsfjarri, allt til næsta kvölds. Það er að segja frá því klukkan tvö þetta síðdegi til um kl. 20 að kvöldi næsta dags - eða í þrjátíu 40

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.