Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Page 53

Morgunn - 01.12.1990, Page 53
Loftur Kristján Breiðfjörð ÓVENJULEG FLUGFERÐ Keflavík - Glasgow - London - Glasgow - Keflavík Þetta flug byrjaði ósköp venjulega á ósköp venjulegum mánudagsmorgni. Flugtakið frá Keflavíkurflugvelli kl. 7:00, eðlilegt og ég taldi byrjaða hjá mér eðlilega og hefðbundna viðskiptaferð til Lundúna. En það var öðru nær og upphóf- ust kynlegheit þessi skömmu eftir flugtak frá Glasgow. Þetta byrjaði þannig að um það bii 13 mínútum eftir flug- tak kom mikill hnykkur á vélina. Þó ég væri flugvanur, brá mér allnokkuð. Þegar ég hafði jafnað mig að mestu fór ég að veita athygli á nokkrum smáatriðum að eitthvað hafði breyst. Til að mynda fannst mér liturinn á skýjunum an- kannalegur, heiðhvolfið grænleitt í staðinn fyrir blátt og ef ég var ekki orðinn vitlaus, þá sýndist mér jafnvel sjálf sólin vera nær en hún átti að vera. Auk þess var komin ný flugfreyja í hópinn, sem ég þorði að leggja eið út á að bættist ekki í hópinn í Glasgow. Og það sem kórónaði allt saman, fimm farþegar sem voru með þegar vélin fór frá Glasgow voru horfnir. Já, það var ekkert vafamál að það var eitthvað að. En hvað? Eitt sinn er þessi nýkomna flugfreyja sveif framhjá mér, greip ég í handlegginn á henni og sagði: „Heyr þú mig, góða mín, það er hér sitt lítið af hverju í sambandi við þessa flugferð sem vekur undrun mína, í fyrst... lengra komst ég ekki því hún lagði hönd sína undur blítt á öxlina á mér, brosti töfrandi til mín og sagði hughreystandi: „Ekki vera svona órólegur, góði minn. Þú ert eini farþeginn sem hefur orðið var við breytingu og vegna þess má ég upplýsa þig á þessu stigi málsins um tvennt. í fyrsta lagi, það er rétt 51

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.