Morgunn - 01.12.1990, Qupperneq 55
MORGUNN___________________________________Óvenjuleg flugferð
Hann brosti og rétti mér hönd sína. „Jóhannes Árnason,"
sagði hann. „Eg hef verið valinn til þess að vera þér til
leiðsagnar fyrst um sinn.”
„Leiðsagnar til hvers?" spurði ég. Jóhannes svaraði þessu
engu og ég elti hann að dyrum vinstra megin á ganginum.
Hann opnaði hurðina, hliðraði til fyrir mér og vísaði mér
með ákveðinni handahreyfingu inn í vel búna og all stóra
skiáfstofu. Hann lokaði síðan dyrunum á eftir sér, settist í
stóran stól á bak við skrifborðið og benti á stól andspænis
honum. Ég fékk mér sæti, hann horfði á mig þegjandi smá
stund og sagði síðan: „Karl Sveinsson, fæddur 13/3 '33. Þú
ert semsagt nýorðinn sextugur. Að menntun ertu lögfræð-
ingur og vipskiptafræðingur. Laukst nánú vorið 1968. Að
atvinnu ertu forstjóri þriggja stórra verksmiðja sem þú áttir
90% eignarhlutdeild í. Sem sagt stóriðjuhöldur. Þann 13/4
'69 kvæntist þú Eybjörgu Grímúlfsdóttur, sem fædd er þann
13/3 '46. Þú hefur getið með henni 7 börn, 4 stráka og 3
stelpur. Það elsta, sem er strákur, er 24 ára. Það yngsta, sem
er stelpa, er 3ja mánaða. Hvað varðar félagslega stöðu ertu
félagi í bæði rótary og lyons klúbbum og auk þess ertu
búinn að vera frímúrari áratugum saman. Þú hefur verið
tiltölulega hraustur alla þína tíð.
Þegar hér var komið sögu, þagnaði Jóhannes, leit upp og
spurði svo. „Er þetta ekki bara nokkuð tæmandi skýrsla?"
Þegar Jóhannes byrjaði að lesa niér lífsferilsskýrslu mína
varð ég orðlaus með öllu. Að vísu hafði þessi dagur verið
mjög óvenjulegur í enda og kant, en núna þegar æviferill-
inn var lesinn fyrir mér gekk alveg fram af mér. Þetta tók þó
út yfir alla þjófabálka.
„Tæmandi skýrsla," apaði ég eftir honum. „Þér sást yfir
eitt atriði, ég er með gyllinæð," þrumaði ég út úr mér með
heimskautakulda í röddinni! Nú þegar ég loksins fékk málið
á ný var ég óstöðvandi. „Ég á heimtingu á sl<ýringum við
þessu öllu," hálf gargaði ég. „I fyrsta lagi, hvað skeði eftir
flugtakið frá Glasgow, hver er þessi dularfulla flugfreyja, af
hverju voru skýin, himininn og sólin svona öðruvísi á eftir,
hvað varð af farþegunum fimrn, af hverju var flugáætlun-
inni breytt, hvar í veröldinni er þessi eyja, hvað heitir hún,
53