Morgunn - 01.06.1998, Síða 30
Fyrikœri á Jjöllum
vakti hina og heyrðu þeir allir höggin. Taldi Þorlákur að
þurft hefði mikið högg til þess að hann vaknaði.
Annað sinn kom Bensi, ásamt Stefáni í Haganesi, í
sæluhúsið seint á degi. Hurð var rík í stöfum og þrýstu
þeir henni vandlega aftur en er þeir voru nýsestir, hrökk
hurðin upp af afli miklu, og varð sem höggið væri rekið í
hana utan frá. Bensi sparn fæti við hurðinni og spurði
hvort hurðaríjandinn gæti ekki tollað aftur. Eftir það bar
ekki neitt á neinu.
Ekki vita menn neina orsök til slæðings þess er virðist
fylgja sæluhúsinu við Jökulsá. Þó hefur eins og annars
verið getið til, en allt virðist það úr lausu lofti gripið.
Eitt sinn þykist Bensi hafa séð mann þar á melnum við
húsið, er hann kom þar í rökkri. Sá hann manninn óglöggt
og virtist honum eitthvert dýr fylgja honum, ef til vill
hundur mikill og loðinn, en öll var sýn þessi óljós og hvarf
skjótt. Þrátt fyrir þetta hafði Bensi, eins og áður greinir,
gist marga nótt aleinn í sæluhúsinu.
Um 1920 gætti hann fjár þarna í mellöndunum í marg-
ar vikur fram eftir vetri og hafði bækistöð í sæluhúsinu.
Má því segja að hann hafi verið orðinn kunnugur heimil-
isháttum þar.
Margir aðrir en Bensi hafa lika sögu að segja af sælu-
húsinu ásamt fleirum og heyrt þar högg og hávaða, sem
erfitt hefur verið að skýra á eðlilegan hátt. Oftast voru það
högg í kjallaranum, barið neðan í loftið eða bitana. Stund-
um voru hestar samtímis því í kjallaranum sem höggin
heyrðust, en þótt lágt sé undir loft, svo að hugsast gæti að
þau væru af þeirra völdum, taldi Halldór höggin svo mik-
il og hörð, að þau yrðu ekki skírð á þann hátt, því húsið,
sem er úr steini, hafi nötrað við barsmíðina.
Jóhannes Jónsson, öðru nafni Drauma-Jói, átti heima á
28 MORGUNN