Morgunn - 01.06.1998, Side 52
Dularfull fyrirbrigði
verið veitt töluverð eftirtekt, og eins til tilefnisins til henn-
ar, mótblástursins gegn rannsókn á þessum fyrirbrigðum,
sem þyrlað var upp hér í bænum. Nú virðist mér tími
kominn til þess að minnast dálitið meira á þetta efni.
Aðal tilefnið er samt ekki í þetta sinn mótblásturinn. Ég
met hann ekki mikils. Engin likindi eru til þess, að hann
geti orðið til fyrirstöðu því mikilvæga málefni, sem hér er
um að tefla. En fyrst ég fer að minnast á málið á annað
borð, get ég ekki stillt mig um að geta hans með fáeinum
orðum. Ég geri það „skynsömum mönnum til fróðleiks og
skemmtunar,“ eins og stundum hefir verið sett framan á
rit um þau efni, sem hvorki gera til né frá, og eru ekki ætl-
uð til annars en vera mönnum til meinlausrar dægrastytt-
ingar.
Ekki svo að skilja, að ALLUR mótblásturinn sé af svo
meinlausum hvötum runninn. Ég get til dæmis að taka,
ekki hugsað mér annað öllu ógeðslegra en mótblástur
stjórnarblaðanna. Hvergi bregður þar fyrir nokkru orði í
fróðleiksáttina, nokkrum glampa af þekkingu eða sann-
leiksást. Málið er eingöngu notað til þess að svívirða mót-
stöðumenn í stjórnmálum. En því fer íjarri að þetta geri
nokkuð til, öðrum en þeim, sem eru að ata sjálfa sig út á
óþverranum. Skynsamir menn sjá hvar fiskur liggur und-
ir steini, þegar farið er að gera rannóknarlöngun og þekk-
ingarþrá að pólitísku ofsóknarefni, jafnvel ekki skirst við
af einu blaðinu, að fara hinum svæsnustu óvirðingarorð-
um um saklausar konur fyrir það eitt, að þær eru að fást
við rannsóknir á andlegum efnum i samvinnu við þá
menn, sem ekki líta á stjórnmál sama veg og landsstjórn-
in! Lengra verður naumast komist í því er miður má fara.
Slíkt athæfi er ekki hætt við að verði sannleikanum til
falls.
50 MORGUNN