Morgunn - 01.06.1998, Blaðsíða 57
Dularfull fyrirbrigði
segja það sama. Manninum fer ekki að verða um sel.
Hann fór að reka minni til þess að hann hefir nýlega úti á
götu, talað við stúlku, sem sé til alls vís og hefði horft
beint framan í hann. Og svo sannfærist hann um að dá-
leiddur hafi hann sjálfsagt verið. Félagar hans segja hon-
um að ekki sé á annað hættandi fyrir hann en að leita sér
læknis. Maðurinn hlýðir því og fer til homopata. Læknir-
inn selur honum meðul fyrir 3 krónur og segir honum að
liggja næsta dag í rúminu.
Ut um landið hafa verið bornar miður trúlegar kynja-
sögur af rannsóknunum. Ég ætla að geta einnar aðeins. í
eina sveit landsins var flutt sú saga og henni trúað af ýms-
um, að úr einu húsi hér í bænum væri fortepíanó flutt á
hverri nóttu út í kirkjugarðinn, til þess að leika þar á það
fyrir einn framliðinn rnann, sem þar er jarðaður. Við
hljóðfærasláttinn kom maðurinn upp úr gröfinni, settist á
leiði sitt og hlustaði á. Þeim, sem trúðu þessu, þótti athæf-
ið í meira lagi óguðlegt.
Svona er mótspyrnunni háttað. Þeir menn mættu vera
óvenjulega viðkvæmir, sem gerðu sér mikla rellu út af
öðru eins, furðu ístöðulitlir þeir, sem finnst þetta ægilegt.
Áreiðanlega er engum svo farið, þeirra, er við þessar
rannsóknir eru að fást.
En nú sé ég, að þetta er þegar orðið lengra mál en Fjall-
konan getur með góðu móti séð af i einu blaði. Og samt
er ég ekki kominn að efninu. Ég bið lesendur mína vel-
virðingar á því og kemst að efninu næst.
Lœkningatilraunir
Ein af þeim dularfullu fyrirbrigðum, sem athuguð hafa
verið hér í bænum 2 síðustu mánuðina eru lækningatil-
raunir. Þær hafa verið gerðar á mörgum sjúklingum, aðal-
MORGUNN 55